Kvöddu strætóbílstjóra sem bjargaði mannslífum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 8. maí 2014 11:19 Hluti bæjarins var í rúst eftir að skýstrókurinn gekk yfir. Vísir/Getty
Íbúar bæjarins Henryville í Indianafylki í Bandaríkjunum kvöddu í gær strætóbílstjórann Ray Donahoe, sem bjargaði lífum margra barna þegar skýstrókur gekk yfir bæinn fyrir tveimur árum. Donahoe var 67 ára þegar hann lést úr hjartaáfalli fyrr í mánuðinum. Hetjudáðir mannsins vöktu mikla athygli þegar skýstrókurinn hreinlega rústaði hluta Henryville í mars árið 2012. Donahoe var á bakvið stýrið á strætisvagni þegar hann sá skýstrókinn nálgast bæinn. Hann var með fullan vagn af börnum og sá að eitthvað þurfti að gera í flýti. Hann stoppaði fyrir framan næsta hús og bankaði upp á. Til dyra kom kona og samþykkti hún að leyfa Donahoe og börnunum að halda til í kjallaranum sínum á meðan skýstrókurinn gekk yfir. „Hann bjargaði lífi okkar allra,“ sagði ein stúlkan sem var í vagninum, í gær þegar hún var viðstödd jarðaför Donahoe. Jarðaförin var fjölmenn og var greinilegt að Donahoe skipti bæjarbúa miklu máli. Útförin var haldin í íþróttasal framhaldsskólans í bænum. Um tvö þúsund manns búa í bænum Henryville. Donahoe var strætóbílstjóri í fjörtíu ár og keyrði alltaf sömu leiðina. Auk þess þjálfaði hann körfubolta og hafnabolta. „Hann elskaði börn bæjarins og þau elskuðu hann. Hann hvatti þau alltaf til dáða,“ sagði konan hans Cathy við útförina í gær og bætti við: „Hann setti fjölskylduna alltaf í forgang. Og hann leit á bæjarbúa sem fjölskylduna sína.“ Flaggað var í hálfa stöng víða um bæinn í gær og voru svartir borðar hengdir á vagninn sem Donahoe keyrði.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Sjá meira