Lítið mál að brjótast inn á vefmyndavélar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 30. apríl 2014 10:34 Friðrik segir ekki þekkja sögu þessa fólk nákvæmlega en þarna er um að ræða ágætis vefmyndavél. Eins vélar séu meira að segja seldar hér á landi. Vefmyndavélin sé beintengd inn á netið og hægt sé að streyma efni af vélinni inn á til dæmis spjaldtölvur.
Foreldrar lítillar stúlku í Ohio í Bandaríkjunum vöknuðu um miðja nótt við að karlmannsrödd heyrðist úr herbergi dóttur þeirra. Þegar þau fóru og athuguðu með hvað var í gangi komust þau að því að einhver hafði hakkað sig inn í vefmyndavél sem var inni í herberginu hennar og sá fylgdist með stúlkunni sofa. Friðrik Skúlason sem hefur lengi talað um tölvuöryggi mætti í viðtal hjá Reykjavk síðdegis í gær. Þar var hann spurður út í það hvort að þetta sem foreldrarnir í Ohio lentu í væri algengt og hvort það væri jafnvel ekkert mál að brjótast með þessum hætti inn á vefmyndavélar. „Þetta er almennt séð eins og þegar fólk uppgötvar að það hafi verið brotist inn hjá þeim,“ sagði Friðrik. Tilfinningin sé óþægileg. Friðrik segir ekki þekkja sögu þessa fólk nákvæmlega en þarna er um að ræða ágætis vefmyndavél. Eins vélar séu meira að segja seldar hér á landi. Vefmyndavélin sé beintengd inn á netið og hægt sé að streyma efni af vélinni inn á til dæmis spjaldtölvur. Það sem honum þykir líklegt að hafi verið málið í þessu tilviki er að foreldrarnir hafi ekki breytt notendanafninu og lykilorðinu til að komast inn á myndavélina. Allar þessar myndavélar komi sjálfar með sjálfgefnu notendanafni og lykilorði. Fólk geti því leitað svona myndavélar uppi og reynt að komast inn á þær með að nota sjálfgefnu orðin. Ef eigandinn hafi ekki breytt þeim sé lítið mál að komast inn á þær. Þessar vélar séu eins og hver önnur tölva á netinu. Aðal sölupunkturinn við þessar vélar sé einmitt að hægt sé að nálgast myndavélina og skoðað hana sem hvar sem er úr hvaða tölvu sem er. Hægt sé að láta tölvu prófa nokkur þúsund IP tölur þangað til dottið sé inn á eitthvað áhugavert. Á þessum vélum er þó einnig öryggisgalli sem auðveldi þeim sem kunna að brjótast inn á þær.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira