Rússar reyna að spilla forsetakosningum í Úkraínu Heimir Már Pétursson skrifar 22. apríl 2014 20:30
Forsætisráðherra Úkraínu segir Rússa ætla sér að spilla forsetakosningum í landinu í næsta mánuði og rússneskar sérsveitir starfi í austurhluta landsins. Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna segir umheiminn aldrei viðurkenna ólögmæta innlimun Krímskaga í Rússland. Aðgerðarsinnar hliðhollir Rússum hafa ekki yfirgefið opinberar byggingar í austurhluta Úkraínu þrátt fyrir samkomulag Rússa, stjórnvalda í Úkraínu, Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins í Genf fyrir helgi. Þrír aðgerðarsinnar í borginni Slaviansk sem féllu í skotbardaga við eftirlitsstöð þeirra á sunnudag voru bornir til grafar í dag. En aðgerðarsinnar segja þjóðernissinnaða Úkraínumenn hafa ráðist á eftirlitsstöðina og fellt félaga þeirra og tveir þjóðernissinnar hafi einnig fallið. Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna kom til Kænugarðs seinnipartinn í gær til að sýna stjórnvöldum þar stuðning. Hann segir að Bandaríkin og umheimurinn muni aldrei viðurkenna ólöglega innlimun Krímskaga í Rússland. „En nú er kominn tími til að Rússar hætti yfirlýsingum og láti verkin tala með því að fara eftir þeim skuldbindingum sem þeir hafa gengist undir. Um að aðskilnaðarsinnar hliðhollir Rússum yfirgefi opinberar byggingar og eftirlitsstöðvar, taki við sakaruppgjöf og láti óánægju sína fram með pólitískum hætti. Það ætti ekki að vera svo erfitt að að fara eftir samkomulaginu og láta af ólöglegri yfirtöku opinberra byginga,“ sagði Joe Biden á sameiginlegum blaðamannafundi með Aresny Yatseniuk forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Kænugarði í dag. Yatseniuk sagði Úkraínumenn vilja víðtækt samstarf við bandarísk og evrópsk orkufyrirtæki. Landið þyrfti á fjárfestingum á þessu sviði að halda til að losna undan áhrifamætti sem Rússar hefðu í orkumálum í Úkraínu. Hann sagði rússneska sérsveitarmenn að störfum í austur Úkraínu til að spilla fyrir forsetakosningum í landinu hinn 25. maí. Við höfum engar kröfur á Rússa. Það eina sem við ætlumst til er að þeir uppfylli alþjóðlega samninga og hætti að haga sér eins og gangsterar,“ sagði Aresny Yatseniuk á blaðamannafundinum með Baiden.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira