Lögreglumenn í Túnis dæmdir fyrir nauðgun Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. apríl 2014 10:45 Mótmæli við dómshúsið í Túnis. Vísir/AP
Tveir lögreglumenn í Túnis hafa verið dæmdir til að sitja sjö ár í fangelsi fyrir að hafa nauðgað ungri konu. Þriðji lögreglumaðurinn fékk tvö ár fyrir að hafa reynt að kúga fé út úr kærasta konunnar. Nauðgunin átti sér stað í september árið 2012. Stuttu eftir að málið komst í hámæli var konan ákærð fyrir brot á lögum um almenna siðsemi. Þau viðbrögð urðu til þess að hrinda af stað fjölmennum mótmælum. Málið hefur allt vakið mikla eftirtekt, og varð að eins konar prófmáli um það hvernig tekið yrði á réttindum kvenna í landinu. Árið áður hafði stjórn landsins hrakist frá völdum vegna uppreisnar almennings í arabíska vorinu svonefnda. Lögmaður konunnar, Radhia Nasraoui, segir dóminn hins vegar alltof vægan: „Þetta er hneyksli,” hefur AP fréttastofan eftir henni. „Þeir neituðu öllu. Þeir voru jafnvel svo ósvífnir að segja að hún hafi leitað á þá.” Lögreglumennirnir þrír réðust á konuna og kærasta hennar í bifreið. Tveir þeirra nauðguðu konunni, hvor á eftir öðrum, á meðan sá þriðji hélt kærasta hennar föstum. Þessi þriðji lögreglumaður þröngvaði kærastanum einnig til að taka fé út úr hraðbanka. Siðferðisbrotsákæran var dregin til baka eftir að konan hafði skrifað bók um reynslu sína. Bókin nefnist „Sek um að hafa verið nauðgað”. Þessa bók gaf hún út undir dulnefninu Meriem Ben Mohamed, og hefur einnig notað það nafn við réttarhöldin.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira