Erlent

Magnað myndband af sólgosi

Ingvar Haraldsson skrifar
Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) birti fyrir skömmu magnað myndband af sólgosi sem átti sér stað þann 2. apríl á þessu ári.

Samkvæmt stjörnufræðivefnum eiga sólgos sér stað þegar segulorka við lithvolf og kórónu sólar losnar skyndilega. Magn þeirrar orku sem losnar við öflugustu blossana jafngildir því að milljónir 100 megatonna vetnissprengjur væru sprengdar samtímis.

Að sögn NASA stendur fólki á jörðu niðri lítil sem engin hætta af sólgosum vegna andrúmsloft jarðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×