Spænska þingið hafnar katalónsku frumvarpi um sjálfstæði Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 9. apríl 2014 19:00 Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar segist ekki geta ímyndað sér Spán án Katalóníu. Vísir/AFP
Kosið var um hvort spænska héraðið Katalónía fengi að halda atkvæðagreiðslu um sjálfstæði sitt á spænska þinginu í gær. Frumvarpinu var hafnað með yfirþyrmandi meirihluta. BBC segir frá. Eftir sjö klukkustunda umræðu kusu þingmenn um frumvarpið. 299 þingmenn kusu gegn því, 47 með því og einn þingmaður sat hjá. Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, hefur áður varað við því að lýsti Katalónía yfir sjálfstæði sínu frá Spáni gæti það leitt til efnahagslegrar vosbúðar fyrir Katalóníu jafnt sem Spán. Raddir katalónskra sjálfstæðissinna hafa orðið háværari síðan efnahagskreppan skall á árið 2008. Deilur á spænska þinginu snúast helst um hvort sjálfstæðisyfirlýsingin brjóti á spænsku stjórnarskránni eður ei. Rajoy telur kosninguna sem katalónska stjórnin áætlar að leggja fyrir héraðið vera ólöglega þar eð atkvæðagreiðslur um sjálfstæðisyfirlýsingar ættu að vera lagðar fyrir alla þjóðina en ekki aðeins eitt hérað samkvæmt spænskum lögum. „Sameinuð sigrum við öll, en sundruð töpum við í sameiningu. Málið snýst fremur um tilfinningagildi en lagabókstaf - ég get ekki ímyndað mér Spán án Katalóníu," sagði forsætisráðherrann.
Mest lesið Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Innlent Líkamsárás í verslunarmiðstöð Innlent Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Innlent Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Innlent Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innlent Vinstrið á blússandi siglingu Innlent Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Innlent Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Innlent Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Innlent Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Innlent Fleiri fréttir Milljónir mótmæla Bandaríkjaforseta Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Sjá meira