Erlent

Blaðamenn lausir úr sex mánaða haldi mannræningja

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ricardo Garcia Vilanova og Javier Espinosa.
Ricardo Garcia Vilanova og Javier Espinosa. vísir/afp
Tveir spænskir blaðamenn, sem rænt var af sýrlenskum skæruliðum fyrir sex mánuðum síðan, eru nú lausir úr haldi. Telegraph greinir frá.

Mannræningjarnir eru taldir vera hluti af hryðjuverkahópnum al-Qaeda.

Ekki er ljóst hvort mennirnir hafi náð að flýja eða hvort þeim hafi verið sleppt úr haldi. Þá er heilsufarsástand þeirra ekki vitað, og ekki er ljóst hvort skæruliðarnir geri einhverjar kröfur.

Mannrán í Sýrlandi er gríðarlega algengt, og þá einna helst fyrir fréttamenn sem koma til landsins. Tíu erlendra fréttamanna er saknað og tíu innlendra.

Tyrknesk stjórnvöld tóku við mönnunum í dag og eru þeir nú á leið til síns heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×