Fótbolti

Lagerbäck: Zlatan er einstakur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Zlatan raðar inn mörkum.
Zlatan raðar inn mörkum. Vísir/Getty
„Auðvitað sá maður strax að hann var mikið efni,“ segir Svíinn Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, um framherjann magnaða, ZlatanIbrahimovic, í útvarpsviðtali við Sky Sports.

Zlatan hefur farið á kostum með PSG á tímabilinu og er búinn að skora 25 deildarmörk auk þess sem hann er búinn að skora 10 mörk í sjö leikjum í Meistaradeildinni.

Zlatan vantar eitt mark til að verða markahæsti leikmaður sænska landsliðsins frá upphafi en hann spilaði sinn fyrsta landsleik 19 ára gamall undir stjórn Lagerbäcks. Hann var þá á mála hjá Ajax.

„Ég sá hann spila með liðinu sínu og ég þekkti þjálfarann hans mjög vel. Við fylgdumst vel með honum í nokkur ár áður en við völdum hann í landsliðið,“ segir Lagerbäck.

„Hann var gríðarlega efnilegur. Maður veit aldrei hvernig framtíðin verður hjá leikmönnum en mér fannst hann alltaf eiga möguleika á að verða mjög góður leikmaður. Hann var auðvitað fullur sjálfstrausts en hafði sig lítið frammi og spilaði ekki mikið til að byrja með.“

„Ég held að allir leikmenn séu þannig til að byrja með en þegar maður fór að kynnast honum kom í ljós að hann var með mikið sjálfstraust og hafði mikinn metnað. Hann vildi alltaf reyna að vera sá besti.“

Lars Lagerbäck gaf Zlatan tækifæri með sænska landsliðinu.Vísir/Getty
Lagerbäck segir Zlatan öðruvísi en aðra bestu leikmenn heims því hann heldur alltaf áfram að bæta sig með aldrinum.

„Hann er mjög sérstakur persónuleiki og gerir miklar kröfur á sjálfan sig. Það sem gerir Zlatan einstakan er að aðrir leikmenn bæta sig ekki jafnmikið í kringum þrítugt,“ segir Lagerbäck.

„Það verður ekki auðvelt fyrir hann að verða betri en hann er í dag. Hann er frábær leikmaður og getur gert ótrúlega hluti sem enginn annar getur gert. Það muna allir á Englandi eftir markinu sem hann skoraði í vináttuleiknum í fyrra. Hann er svo mikill íþróttamaður og getur gert magnaða hluti,“ segir Lars Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×