Erlent

Þúsundir Breta klúðra nomakeupselfie fjáröflun

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Fjölmargir Bretar sóttu um að ættleiða ísbjörn í stað þess að styrkja krabbameinsrannsóknir.
Fjölmargir Bretar sóttu um að ættleiða ísbjörn í stað þess að styrkja krabbameinsrannsóknir. Vísir/AFP
Meira en 8 milljón pund hafa safnast í #nomakeupselfie fjáröflunarherferðinni í Bretlandi. Þó voru fjölmargir sem gáfu peninga til rangrar stofnunar. BBC segir frá.

Þátttakendur gátu sent smáskilaboðin "BEAT" til þess að gefa pening til bresku krabbameinsrannsóknarstofnunarinnar. Hins vegar voru ótal margir sem sendu skilaboðin "DONATE", en við það gáfu þeir fé til Unicef, barnaverndunarsamtaka Sameinuðu þjóðanna. Enn aðrir sóttu óvart um að ættleiða ísbjörn hjá Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum WWF.

Unicef sagði í viðtali við BBC að hingað til hefðu 18.625 pund borist þeim vegna misskilningsins. Sagðist Unicef vera að vinna með krabbameinsrannsóknarstofnuninni til þess að skila peningunum til réttmætra viðtakenda.

Unicef telur mistökin eiga sér orsök í samfélagsmiðlum þar sem einhver hefur í ruglingi deilt mynd af sér þar sem sagði að "DONATE" væri smáskilaboðatextinn en ekki "BEAT". Síðan hefur þessu verið dreift áfram.


Tengdar fréttir

Krabbamein afgreitt á svipaðan hátt og Facebook-leikir

"Það er einhver furðuleg áskorun að ganga á Facebook sem gengur út á að með því að konur birti myndir af sér ómáluðum séu þær að sýna stuðning við baráttu gegn brjóstakrabbameini,“ segir Berglind Guðmundsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×