Erlent

Tóm þvæla að allir þurfi að klippa sig eins og Kim Jong Un

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Kim Jong Un með klippinguna eftirtektarverðu.
Kim Jong Un með klippinguna eftirtektarverðu. Nordicphotos/AFP
Ekkert virðist vera hæft í sögum frá Norður-Kóreu um að Kim Jong Un leiðtogi hafi gert karlkyns háskólanemum í landinu skylt að láta klippa sig eins og hann: nefnilega snoðklippt upp með hliðunum.

Tröllasögur frá þessu landi virðast eiga auðvelt uppdráttar, enda erfitt að fá staðfestingar á því hvort eitthvað sé í raun til í þeim.

Fréttastofan NK News, sem sérhæfir sig í fréttum frá Norður-Kóreu, hefur kannað málið og segir að á götum Pjongjang, höfuðborgar Norður-Kóreu, sjáist þess engin merki að karlmenn hafi fylgt slíkum fyrirmælum, hafi þau verið gefin út. 

Nokkuð strangt eftirlit er reyndar haft með klæðaburði almennings í Norður-Kóreu. Lögreglan skiptir sér óspart af því ef konur eru til dæmis í of stuttum pilsum eða ef fólk sést í gallabuxum, sem er talinn vera óþægilega kapítalískur klæðaburður. 

Tvífarinn í Kína.Nordicphotos/AFP
Þá er öllum skylt að vera með myndir af fyrri leiðtogum á jakkakraga, þeim Kim Jong Il og Kim Il Sung, pabba og afa núverandi leiðtoga landsins.

Handan landamæranna, í Kína, hefur hins vegar maður nokkur vakið athygli á síðustu dögum fyrir það hversu líkur hann er Kim Jong Un, og sá skartar klippingunni góðu. Tvífari þessi er götusali í borginni Shenyang, sem er skammt norður af Norður-Kóreu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×