Erlent

Obama í heimsókn hjá Frans Páfa

Samúel Karl Ólason skrifar
Víisr/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er nú í heimsókn í Vatíkaninu þar sem hann fundar með Frans Páfa í fyrsta sinn. Síðustu sex daga hefur Obama setið fundi með leiðtogum ESB varðandi Krímskagadeiluna.

Frá þessu er sagt á vef BBC.

Í viðtali fyrir heimsókn sína lýsti Obama páfanum sem manni sem „lifir guðspjallið“. Þrátt fyrir mjög svo mismunandi skoðanir þeirra á fóstureyðingum, getnaðarvörnum og hjónaböndum samkynhneigðra, segir við mælandi BBC að á fundinum muni þeir einbeita sér að málefnum sem þeir séu sammála um.

Vísir/AFP
Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×