Obama gefur þinginu 90 daga frest Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. mars 2014 10:45 Uppljóstranir Snowdens sviptu hulunni af stórfelldri eftirlitsstarfsemi bandarískra njósnastofnana. Nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti í gær hugmyndir sínar um breytt fyrirkomulag á eftirliti njósnastofnana með símtölum fólks. Uppljóstranir Edwards Snowdens á síðasta ári sviptu hulunni af því að undanfarin ár hefur Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna safnað saman í stórum stíl upplýsingum um símtöl einstaklinga. Þessar upplýsingar hafa verið geymdar hjá stofnuninni í fimm ár. Obama vill breyta þessu þannig að Þjóðaröryggisstofnunin safni ekki saman þessum upplýsingum heldur verði símafyrirtækjum gert skylt að geyma þær, en ekki í fimm ár heldur í 18 mánuði. Hann hefur gefið Bandaríkjaþingi frest til 1. júní til að útfæra þessar breytingar í lagafrumvarpi.Patrick Leahy, formaður dómsmálanefndar Bandaríkjaþings, hefur sagt að Obama hefði í sjálfu sér getað ákveðið upp á sitt einsdæmi að stöðva þessa upplýsingasöfnun án tafar. Þess í stað ákvað hann að óska eftir því við dómstóla að framlengja um 90 daga þá heimild sem Þjóðaröryggisstofnunin hefur haft til þess að safna saman upplýsingunum. Obama gæti síðan haldið áfram að óska eftir 90 daga framlengingu aftur og aftur, en þó ekki lengur en til 1. júní á næsta ári, en þá renna út þau lög sem hafa eftirlitsheimildirnar eru byggðar á. Margir hafa talið líklegast að engu yrði breytt fyrr en þau lög renna út, og þótt Obama hafi nú farið fram á það við þingið að breytt fyrirkomulag verði samþykkt fyrir júníbyrjun á þessu ári, þá er allsendis óvíst hvort þinginu takist að ná samkomulagi um málið fyrir þann tíma.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Sjá meira