Fótbolti

Alfreð lék allan leikinn í tapi Heerenveen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð í baráttunni í dag.
Alfreð í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason lék allan leikinn þegar lið hans, Heerenveen, tapaði 2-0 fyrir Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni.

Þetta er aðeins í áttunda skiptið sem Alfreð mistekst að skora í þeim 25 leikjum sem hann hefur leikið með Heerenveen í deildinni í vetur. Hann er þó eftir sem áður markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar með 23 mörk.

Þá gerði lið Guðlaugs Victors Pálssonar, NEC Nijmegen, 2-2 jafntefli við Utrecht á heimavelli. Guðlaugur Victor lék ekki með NEC vegna leikbanns, en hann fékk rautt spjald í leik gegn Roda um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×