Nýnasistar réðust á femínista 9. mars 2014 22:40 vísir/afp
Sex manns voru fluttir á sjúkrahús eftir hnífaárás í Malmö aðfaranótt sunnudags. Þrír hafa verið handteknir vegna málsins og eru þeir samkvæmt upplýsingum sænsku lögreglunnar yfirlýstir nasistar. Aftonbladet fjallar um málið. Á laugardagskvöld var skipulögð ganga til að mótmæla ofbeldi karla gegn konum á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Um tvö hundruð voru í göngunni, sem skipulögð er af femínistum í borginni ár hvert. Gangan fór að mestu leyti friðsamlega fram en rétt eftir að henni lauk var ráðist á sexmenningana sem höfðu verið í göngunni. Haft er eftir sjónarvottum að ekki hafi verið um slagsmál að ræða heldur hrottalegt ofbeldi af hálfu árásarmannanna. Einn þeirra sem ráðist var á fékk lífshættulega áverka og var líðan hans enn óstöðug í gær. Þrír menn hafa verið handteknir grunaðir um tilraun til manndráps. Tveir menn voru handteknir strax um nóttina og í gær var sá þriðji handtekinn. Lögreglan rannsakar nú málið og tekur skýrslu af sjónarvottum. Hún gefur því ekki upp miklar upplýsingar að svo stöddu fyrir utan að talið er að árásin hafi verið skipulögð af meðlimum í nasistahreyfingu. Árásin í Malmö hefur vakið hörð viðbrögð í Svíþjóð. Þúsundir söfnuðust saman í Möllevangstorginu í Malmö í gær, sem og öðrum borgum Svíþjóðar, til að mótmæla árásinni og sýna fórnarlömbunum stuðning í verki
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sjá meira