Omega 3 bætir svefn barna Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. mars 2014 07:00
Samkvæmt rannsókn sem gerð var við Oxford háskóla getur það bætt svefn barna að borða olíuríkan fisk eða Omega-3 bætiefni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hærra magn Omega-3 fitusýru sem finnst meðal annars í fiskmeti hafi beina tengingu við betri svefn. Financial Express greinir frá þessu. Rannsóknin fór þannig fram að kannað var hvort dagleg inntaka á Omega 3 myndu bæta svefn 362 barna. Foreldrar svöruðu spurningakönnun áður en tilraunin hófst og samkvæmt henni áttu fjögur af hverjum tíu börnum við svefnvandamál að stríða. Rannsakendur settu mælitæki á úlnlið þeirra 43 barna sem voru sögð sofa illa í þeim tilgangi að fylgjast með hreyfingum þeirra í svefni. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að þau börn sem fengu Omega 3 bætiefni á hverjum degi sváfu að meðaltali um klukkutíma lengur og vöknuðu sjö skiptum sjaldnar en börn sem gefin var lyfleysa. Rannsóknir höfðu áður sýnt samhengi milli svefnvandamála og Omega 3 og Omega 6 fitusýru hjá ungabörnum sem og börnum og fullorðnum sem eiga við hegðunar og lærdómsvandamál að stríða. Þetta er hinsvegar í fyrsta sinn sem slík rannsókn er gerð á heilbrigðum börnum. Í upphafi rannsóknarinnar gáfu svör foreldrar 40% barnanna það í skyn að þau ættu við stöðug svefnvandamál að stríða, svosem eins og vandamál við að koma börnum í rúmið, kvíða við að fara að sofa ásamt því að vakna oft á hverri nóttu. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að með því að hækka magn Omega 3 fitusýru í blóði yrðu svefn og svefnvenjur barnanna mun betri. Aðalhöfundur skýrslunnar, Paul Montgomery hjá Oxford Háskóla, sagði að það væri áhyggjuefni að fjögur af hverjum tíu börnum eigi við svefnvandamál að stríða, en að hin ýmsu efni sem verða til í líkamanum vegna Omega 3 og Omega 6 fitusýru hjálpi til við ná tökum á svefnvandamálum hafa löngum verið þekkt.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Fleiri fréttir Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Sjá meira