Eignanám lögreglu löglegt Samúel Karl Ólason skrifar 20. febrúar 2014 17:23 David MIranda og Glenn Greenwald. Vísir/AFP
Aðgerðir lögreglu í Bretlandi, þegar tölvur og gögn voru tekin af sambýlismanni blaðamannsins Glenn Greenwald, hafa verið úrskurðaðar löglegar. Blaðamaðurinn hefur fjallað mikið um Edward Snowden. David Miranda var í haldi tollvarða á Heathrow-flugvelli í níu klukkustundir í ágúst síðastliðnum. Miranda var á leið til Brasilíu og fékk að halda för sinni áfram að yfirheyrslu lokinni. Hins vegar voru farsími, minniskort og tölva Miranda gerð upptæk. Greenwald hefur mikið skrifað um njósnir yfirvalda í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hann fékk afhent gögn sem Edward Snowden stal af NSA, öryggisþjónustu Bandaríkjanna. Gögn fengin frá Snowden voru meðal þeirra sem voru tekin af Miranda á flugvellinum. Lögfræðingar Miranda héldu því fram að hann hafi verið færður til yfirheyrslu og haldið á flugvellinum svo yfirvöld gætu komist yfir gögn blaðamanns. Á það féllust dómarar ekki og sögðu að aðgerð tollvarða og lögreglu hefði verið í þágu þjóðaröryggis. „Við höfðum vísbendingar um að David Miranda væri með stolin trúnaðargögn frá Edward Snowden. Við vorum hrædd um að ef gögnin yrðu gerð opinber myndi öryggi fólks vera í hættu,“ sagði Theresa May, innanríkisráðherra Bretlands, við BBC. Glenn og sambýlismaður hans, David Miranda, ætla að áfrýja úrskurðinum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gert árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira