Hættuástand vegna flóða Birta Björnsdóttir skrifar 10. febrúar 2014 20:45
Hættuástandi hefur verið lýst yfir á 16 svæðum meðfram Thames-ánni í Bretlandi í kjölfar mikilla flóða í ánni undanfarna daga. Þá eru um 2.500 heimili í nágrenni árinnar talin í eyðileggingarhættu.David Cameron hefur heimsótt flóðasvæðin undanfarna daga og hefur þar áréttað að allt verði gert til að koma til móts við þá sem hafa orðið fyrir eignatjóni vegna flóðanna. Yfirvöld í Bretlandi hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast hægt og illa við vatnsveðrinu, en sum svæði á Suður-Englandi hafa legið í vatnsbaði undanfarinn mánuðinn. Þá hafa flóðin valdið talsverðri röskun á lestarsamgöngum á svæðinu. Breski herinn var í gærkvöldi og í nótt að störfum við Thames og hlóð varnargarða í þeirri von að hægt yrði að verja hús í nágrenni árinnar fyrir flóðum. Ekki er útlit fyrir að vatnsveðrið sé í rénun alveg á næstunni, en spáð er talsverðri rigningu með kvöldinu í Bretlandi.Ákærður fyrir morð, nauðganir og valdaránBosco Ntganda, fyrrverandi uppreisnamaður og stríðsherra, kom fyrir alþjóðaglæpadómstólinn í Haag fyrr í dag. Þar fara fram réttarhöld yfir honum og er hann meðal annars ákærður fyrir morð, nauðganir, valdarán og notkun á börnum í hernaði, bæði sem uppreisnarmaður og sem hermaður í kongóska hernum. Ntganda, sem hefur viðurnefnið Tortímandinn, gaf sig fram við yfirvöld í mars í fyrra eftir að hafa verið eftirlýstur af alþjóða stríðsglæpadómstólnum. Ákærurnar eru í 18 liðum og eiga verknaðirnir að hafa átt sér stað í Rúanda og Kongó, en Ntganda hefur neitað öllum ásökunum sem á hann eru bornar. Ákæruvaldið lætur því nú reyna á hvort næg sönnunargögn séu fyrir hendi til að fá hann dæmdan fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira