Myrti son sinn eftir krikketæfingu og var skotinn í kjölfarið Kjartan Atli Kjartansson skrifar 13. febrúar 2014 11:37 Margir hafa minnst Luke á Facebook. „
Þetta var ótrúlega sorglegur atburður – eitthvað sem enginn gat séð fyrir,“ segir Rosie Batty, móðir Luke Batty sem var myrtur af föður sínum eftir krikketæfingu í Tyabb, úthverfi Sydney í Ástralíu í gær. Hinn 52 ára Greg Batty fór með 11 ára syni sínum á krikketæfingu. Að henni lokinni myrti Greg son sinn. Barði hann með krikketkylfu og stakk hann. Lögreglan var kölluð á vettvang og eftir að hafa reynt að afvopna Greg neyddust lögegluþjónar að skjóta hann. Samband feðganna var nokkuð stormasamt, en Greg glímdi við geðræn vandamál og umgekkst Luke ekki mikið. Greg bjó hálfpartinn á götunni.Á dimmum stað Greg kom á krikketæfingu og fylgdist með Luke. Að lokinni æfingu bað Luke móður sína um að fá að vera aðeins lengur með föður sínum. „Hann elskaði pabba sinn. Hann vissi að pabba sínum leið ekki vel. Hann vissi að pabbi sinn var á dimmum stað,“ segir Rosie Batty. „Enginn gat hjálpað Greg. Ég reyndi, fjölskyldan hans reyndi. Allir reyndu,“ útskýrir Rosie sorgmædd. Hún sagði ekkert hafa gengið í lífi Greg, Luke hafi verið eina ljósið í lífi hans. „Ég vildi að Luke myndi þekkja pabba sinn. Ég sé ekki eftir því að hafa leyft þeim að kynnast, barn sem elst upp án föður sín glímir við vandamál. Þetta var ófyrirséð,“ segir Rosie. „Ég vil minnast hans með gleði í hjarta,“ segir móðirin.Hélt að þetta væri slys Rosie var stödd nálægt atvikinu, aðeins í nokkurra tuga metra fjarlægt. Hún hélt að Luke hefði lent í slysi og að Greg hefði verið að reyna að hlúa að drengnum. Hún hljóp í áttina að syni sínum. „Ég hljóp í áttina að þeim og bað fólk um að hringja á sjúkrabíl. Ég hélt allan tímann að þetta væri slys og að Greg væri að hjálpa Luke,“ segir Rosie.Skipulag eða stundarbrjálæði Lögreglan í Sydney rannsakar nú hvort morðið hafi verið skipulagt, eða hvort þetta hafi verið stundarbrjálæði. „Ég get ekki tjáð mig um einstök atriði í málinu. Það sem ég get sagt er að sárin sem maðurinn olli syni sínum voru ljót og ollu honum greinilega dauða,“ segir Doug Fryer yfirlögregluþjónn. Vitni að morðinu hafa verið yfirheyrð – fjöldi þeirra voru börn sem voru stödd á krikketæfingu.Facebook logar Fjöldi Facebook-síðna hefur verið stofnaður í nafni Luke Batty, í kjölfar morðsins. Ein síðan er til dæmis komin með 93 þúsund fylgjendur. Þar vottar fólk um allan heim þessum látna dreng virðingu sína. Liðsmenn landsliðs Ástrala í krikketi ætla að vera með svört bönd um handleggi sína í næsta landsleik, til þess að minnast Luke.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira