Vilja draga Kim Jong-Un fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólinn Jóhannes Stefánsson skrifar 17. febrúar 2014 18:46 Kim Jong-Un og félagar í verkamannaflokk Norður-Kóreu berja íbúa landsins til hlýðni.
Mannréttindanefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sakar stjórnvöld í Norður-Kóreu um pyntingar, nauðganir, skipulagðar útrýmingar fólks og fleiri alvarlega glæpi gegn mannkyni í nýrri skýrslu. Nefndin leggur til að æðstu stjórnendur ríkisins verði dregnir fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Þungar sakir eru bornar á valdhafa í landinu. Þeim er gefið að sök að hefta fullkomlega frelsi fólks til hugsana, tjáningar og trúarskoðana. Fólki er frá vöggu til grafar innrætt skoðun á valdhöfum landsins sem jaðrar við trúarlegt innræti. Tilgangurinn er að tryggja algjöra undirgefni við stjórnvöld í landinu.Fylgjast með öllum þáttum daglegs lífs Stjórnvöld í landinu fylgjast nánast með hverju skrefi fólks á öllum aldri og neita þegnum sínum um upplýsingar frá óháðum uppsprettum. Þá er fólki mismunað á víðtækum grundvelli, en þessi mismunun hefur þó verið á ákveðnu undanhaldi eftir aukna markaðsvæðingu í Norður-Kóreu. Markaðsvæðingin hefur leitt til þess að margir njóta nú aukinna efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda.Nota aðgang að matvælum til að þvinga fólk til hlýðniNorður-Kóresk stjórnvöld nota aðgang að matvælum til þess að umbuna fólki eftir því hversu mikilvægt það er talið til að viðhalda óbreyttu fyrirkomulagi. Þetta hefur leitt til þess að hundruðir þúsunda hafa látist úr hungri, þó að ástandið hafi skánað á seinustu árum. Þá eru menn gjarnan látnir sitja í fangabúðum svo árum skiptir verði þeir uppvísir að því að hafa pólitískar skoðanir sem talið er að geti ógnað stjórnvöldum.BBC greinir frá. Hér fyrir neðan má sjá nýja fréttaskýringu Frontline um ástandið í Norður-Kóreu.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Sjá meira