Nunna á níræðisaldri dæmd í fangelsi í Bandaríkjunum 19. febrúar 2014 08:51 Systir Megan Rice, ásamt vitorðsmönnum sínum.
Áttatíu og fjögurra ára gömul bandarísk nunna hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að brjótast inn á kjarnorkustöð í Tennessee sem framleiðir og geymir úran. Nunnan, systir Megan Rice braust inn á stöðina sumarið 2012 ásamt tveimur öðrum til þess að mótmæla kjarnavopnum og þurftu þau að hafa fremur lítið fyrir því að komast inn. Tvímenningarnir sem voru með henni fengu þyngri dóma, eða rúm fimm ár. Systir Rice hafði hvatt dómarann til þess að sýna henni enga linkind og sagðist hún aðeins sjá eftir því að hafa ekki gripið til aðgerða fyrr á ævinni. Fólkið var sakfellt fyrir að valda skemmdum á eignum bandarísku ríkisstjórnarinnar en þau hefðu getað átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma en hinir öldnu aðgerðarsinnar, en félagar nunnunnar eru á sextugs- og sjötugsaldri, virðast ekki hafa haft mikið fyrir því að komast inn á svæðið. Þau höfðu þó ekki annað meðferðis en öflugar víraklippur sem voru notaðar til þess að klippa göt á einar þrjár girðingar á leið þeirra að stöðinni. Þau komust rúman kílómetra inn á hið harðlokaða svæði áður en þau voru handtekin en þá höfðu þau verið þar í nokkrar klukkustundir. Síðan þetta gerðist hafa yfirvöld hert öryggisgæsluna á svæðinu og öðrum slíkum vítt og breytt um Bandaríkin.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira