Leita að kjarnorkurannsóknarstöð Hitlers Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2014 12:50 Mathausen útrýmingarbúðirnar eru nú safn. Vísir/AFP
Leit stendur nú yfir að leynilegri rannsóknarstöð, þar sem Adolf Hitler lét vísindamenn þróa kjarnorkusprengju. Talið er að stöðin sé undir Mauthausen – Gusen útrýmingabúðunum í Austurríki og ef hún finnst myndi það varpa nýju ljósi á hve nálægt fullbúni kjarnorkusprengju nasistar voru. Undir búðunum er net ganga og herbergja yfir ellefu hektarar að stærð, sem grafin voru af þrælum úr útrýmingarbúðunum. Fleiri en 320.000 manns létust í búðunum eða voru myrt í gasklefum. Töluverð geislun hefur fundist á svæðinu, en jarðfræðingar segja hana geta verið af náttúrulegum völdum. Fyrirtæki sem hefur í áratug dælt steypu í göngin er nú að bora þau út aftur. Sagt er frá þessu á vef Forbes. Rannsóknarstöðin var notuð til að framleiða hluta ME 262 flugvélarinnar, sem var fyrsta orrustuþota heimsins. Austurríski kvikmyndagerðamaðurinn Andreas Sulzer gróf upp vísbendingar um að þarna væri að finna leynilega rannsóknarstöð. Hann hefur unnið að heimildarmynd um vísindamanninn Viktor Schauberger, sem vann við leynileg rannsóknarverkefni á vegum SS. Schauberger sagði vinnufélögum sínum frá því í bréfi, að vinna hans fæli í sér vinnu með atóm. Andreas Sulzer segist hafa undir höndum teikningar að 20 kílómetra löngum göngum, sem byggð voru árið 1944 af 272 föngum. Einnig segist hann búa yfir upplýsingum að meðal fanga í búðunum hefði verið óeðlilega mikið af eðlis- og efnafræðingum.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira