Umdeildum grínista bannað að skemmta Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. janúar 2014 10:00 Frakkar sýna "kjötbollukveðjuna”, öfuga nasistakveðju sem Diuedonne M'Bala M'Bala hefur óspart notað á skemmtunum sínum. Nordicphotos/AFP
Franska grínistanum Dieudonne M'Bala M'Bala var í gærkvöld bannað að koma fram í borginni Nantes, þrátt fyrir að fyrr um daginn hafi dómstóll þar í borg gefið grænt ljós á skemmtanir hans. Maðurinn hefur verið sakaður um gyðingahatur og hann hefur ítrekað hlotið dóm fyrir að hafa hvatt til kynþáttahaturs. Á skemmtunum sínum gerir hann einatt grín að gyðingum og vísar þá óspart til helfararinnar. Hann er einnig þekktur fyrir það sem hann kallar „öfuga nasistakveðju”, sem hann kallar „quenelle”. „Quenelle” er kjöt- eða fiskbolla, ekki þó hnöttótt í laginu heldur ílöng.Franski grínistinn Dieudonne M'Bala M'Bala þegar hann hugðist bjóða sig fram til Evrópuþingsins árið 2009.Mynd/APBorgaryfirvöld í Nantes tóku fyrir nokkru ákvörðun um að heimila honum ekki að koma fram í borginni, og stóðu við það í gærkvöld þrátt fyrir úrskurð dómstólsins fyrr um daginn. Þúsundir manna, sem höfðu ætlað sér að mæta, stóðu fyrir utan skemmtistaðinn harla ósáttar við málalok. Næstum uppselt var á skemmtunina í Nantes, sem átti að verða upphafið að sýningaferð um landið þar sem hann hugðist koma fram á þrjátíu stöðum. Málið hefur verið mjög umrætt í Frakklandi síðustu daga. Manuel Valls innanríkisráðherra hefur sagt að hann vilji að Dieudonne verði bannað að koma fram alls staðar í landinu: „Almenningur ætti ekki að fara á þessar skemmtanir,” sagði hann.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira