Líkir ESB við Sovétríkin Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. janúar 2014 10:30 Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðernisfylkingarinnar. Nordicphotos/AFP
Marine Le Pen vill ólm frá Nigel Farage í lið með sér gegn „Evrópusovétríkjunum” og rífa niður „Brusselmúrinn”. Farage vill hins vegar ekkert hafa með hana að gera, og segir flokk sinn lausan við alla kynþáttahyggju. Le Pen er leiðtogi frönsku Þjóðernisfylkingarinnar en Farage er leiðtogi breska Sjálfstæðisflokksins. Bæði hafa gagnrýnt Evrópusambandið harðlega. „Þeir segjast ekki vera sammála okkur. Kjaftæði,” segir Le Pen, að því er fram kemur í breska dagblaðinu The Independent. „Gott og vel, við höfum ekki sömu stefnu í efnahagsmálum, en þeir eru sammála okkur um Evrópusambandið og innflytjendamál: Allir þurfa að verja landamæri sín, Evrópusovétríkin verða að hrynja, allir þurfa að hafa sinn eigin gjaldmiðil, sína efnahagsstefnu og taka ákvarðanir á heimavelli.”Nigel Farage, leiðtogi breska Sjálfstæðisflokksins.Nordicphotos/AFPHún segir einnig nauðsynlegt að „rífa niður Brusselmúrinn,” rétt eins og Berlínarmúrinn féll á sínum tíma. Le Pen hefur tekið höndum saman við Geert Wilders, leiðtoga Frelsisflokksins í Hollandi, og þau hyggjast stofna nýtt flokkabandalag hægri þjóðernisflokka á Evrópuþinginu í vor. Farage hefur hins vegar ítrekað hafnað aðild að þessu væntanlega bandalagi. „Ég er viss um að nýtt nýtt bandalag efasemdarflokka um Evrópusambandið, með Marine Le Pen og Geert Wilders og fleirum, verði að veruleika, en breski Sjálfstæðisflokkurinn verður ekki þátttakandi í því,” er haft eftir Farage í The Independent.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Innlent „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Erlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Fleiri fréttir Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent