Frost mældist í öllum ríkjum Bandaríkjanna 8. janúar 2014 08:28 Í Chicago er Michigan vatn ísilagt. MYND/AFP
Frosthörkur eru enn í Bandaríkjunum þótt veðurfræðingar spá því að á næstu dögum fari að hlýna á ný. Í gær gerðist sá einstæði atburður að frost mældist í öllum fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna. Á Hawaí mældist meira að segja sjö stiga frost, þótt það hafi verið í hlíðum stærsta eldfjalls eyjanna. Mesta frostið mældist hinsvegar í bænum Embarass, í Minnesota þar sem mælar sýndu þrjátíu og sjö stiga frost. Og í hinni suðlægu borg Atlanta, sem oft er raunar kölluð Hotlanta, fór hitastigið heilum tuttugu og sex stigum fyrir neðan meðaltalið á þessum árstíma í borginni. Kuldunum fylgja miklar raskanir á samgöngum og þurfti að aflýsa um 2500 flugferðum í gær. Kuldakastið setti illilega strik í reikninginn fyrir Robert Vick, fanga sem flúði úr fangelsi í Kentucky á sunnudag. Hann var frelsinu feginn í skamman tíma, eða þangað til frostið, sem mældist tuttugu og níu gráður á hans slóðum, fór að bíta hressilega. Vick entist aðeins í nokkra klukkutíma á flóttanum þangað til hann fór inn á Mótel í ríkinu og tilkynnti starfsfólkinu að hann vildi gefa sig fram við lögreglu. Hann var síðan kominn í hlýjan klefann að nýju skömmu síðar.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira