Chelsea stóð sig best á leikmannamarkaðnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. desember 2014 06:00 Diego Costa hefur hækkað raunvirði sitt. Vísir/Getty
Efsta lið ensku úrvalsdeildarinnar stóð sig frábærlega á leikmannamarkaðnum í sumar, en þeir leikmenn sem liðið keypti hafa margfaldað verðgildi sitt og sumir þeirra sem fóru hafa hríðlækkað í verði. Þetta kemur fram í ítarlegri tölfræðiskýrslu The Football Observatory sem starfar innan Alþjóðlegu íþróttarannsóknamiðstöðvarinnar í Neuchatel í Sviss. Árlega reiknar hópurinn út verðgildi rétt tæplega 1.500 knattspyrnumanna sem spila í ensku úrvalsdeildinni, spænsku 1. deildinni, Seríu A á Ítalíu, þýsku 1. deildinni og frönsku 1. deildinni og hafa fært sig um set á síðustu fimm árum. Rannsóknarhópurinn notast við sinn eigin algóriþma sem metur verðgildi leikmanns út frá lengd samnings, aldri, leikstöðu, mörkum, skotum á mark og mínútum spiluðum. Miðað var að þessu sinni við tímabilið 13. desember 2013 til 12. desember 2014. Þegar litið er yfir félagaskipti sumarsins og algóriþmi TFO notaður kemur í ljós að Chelsea gerði langbestu kaupin. Liðið keypti Diego Costa á 44 milljónir evra en raunvirði hans í dag er 84 milljónir evra vegna frammistöðu hans til þessa með Chelsea. Cesc Fábregas kostaði Chelsea 37 milljónir evra en er nú metinn á 62 milljónir. Þeir tróna á toppi listans yfir bestu kaupin. Þá lét Chelsea David Luiz fara til PSG fyrir 50 milljónir en raunvirði hans í dag er 24 milljónir evra. Manchester United var ekki jafn öflugt á leikmannamarkaðnum miðað við þessa rannsókn. Ángel di María kostaði liðið 75 milljónir evra en er nú metinn á 57 milljónir og Juan Mata hefur farið úr 44,7 í 33 milljónir evra. Luis Suárez, sem fór til Barcelona, hefur einnig hríðlækkað í verði, sem stafar að stórum hluta til af því að hann spilaði ekki fyrr en í október. Hann kostaði Barcelona 81 milljón evra en raunvirði hans í dag miðað við algóriþma TFO er 48 milljónir evra. Liverpool „græddi“ því á sölu hans sé miðað við skýrsluna.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira