Kinberg Batra verður nýr leiðtogi Moderaterna Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2014 16:01 Anna Kinberg Batra hefur verið meðal talsmanna Moderaterna í efnahagsmálum. Mynd/Moderaterna
Sérstök valnefnd sænska hægriflokksins Moderaterna hefur nú formlega lagt til að Anna Kinberg Batra verði næsti formaður flokksins. Kinberg Batra mun taka við embætti á sérstökum landsfundi í janúar. Kinberg Batra hefur verið meðal talsmanna flokksins í efnahagsmálum síðastliðin ár og segist sjálf vera vel búin til að takast á við verkefnið. Sagðist hún að mestu ætla byggja á þeirri pólitík sem Fredrik Reinfeldt hafi mótað og leitt síðustu ár. Reinfeldt tilkynnti að hann hugðist segja af sér formannsembættinu í flokknum eftir tap í þingkosningunum í september, en hann hafði gegnt því embætti frá árinu 2003 og embætti forsætisráðherra frá 2006.„Stokkhólms-pólitíkus“ Kinberg Batra er 44 ára gömul og hefur setið á þingi frá árinu 2006. Hún er gift David Batra, frægum grínista. Gagnrýnendur hafa sagt að þeim þyki hún vera helst til of mikill „Stokkhólms-pólitíkus“ og hafa orð hennar í viðtali frá árinu 1998 um að henni þyki „Stokkhólmsbúa gáfaðri en landsbyggðarfólk“ verið rifjuð upp síðustu mánuði. Kinberg Batra segir nú orðin vera þau heimskustu sem hún hafi nokkurn tímann látið út úr sér.Töpuðu síðustu kosningum Moderaterna hlaut rúmlega sjö prósent minna fylgi í síðustu kosningum samanborið við kosningarnar 2010. Talið er að flokkurinn hafi misst marga kjósendur til Svíþjóðardemókrata sem eru harðlega andsnúnir núverandi innflytjendastefnu sænskra stjórnvalda. Því er ljóst að Kinberg Batra mun þurfa að kljást við innflytjendamálin á einn eða annan hátt.Þingkosningar 22. mars Stefan Löfven forsætisráðherra tilkynnti í síðustu viku að þingkosningar verði haldnar í landinu þann 22. mars. Tilkynningin kom í kjölfar þess að minnihlutastjórn jafnaðarmanna og Græningja mistókst að fá fjárlagafrumvarp sitt samþykkt og meirihluti þingmanna samþykkti frumvarp borgaralegu flokkanna sem eru í stjórnarandstöðu.Fyrsta konan í stóli forsætisráðherra? Kinberg Batra verður önnur konan sem á raunverulega möguleika að taka við forsætisráðherraembætti Svíþjóðar. Sú fyrri var Mona Sahlin, fyrrverandi formaður Jafnaðarmannaflokksins, en flokkur hennar tapaði þingkosningum árið 2010 og sagði hún í kjölfarið af sér sem formaður. Svíþjóð er eina landið á Norðurlöndum þar sem kona hefur enn ekki skipað embætti forsætisráðherra.
Tengdar fréttir Nýjar þingkosningar í Svíþjóð 22. mars Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar tilkynnti að þann 29. desember verði boðað verði til þingkosninga í Svíþjóð. Kosningar fara fram þann 22. mars. 3. desember 2014 15:53 Fjárlagafrumvarp sænsku ríkisstjórnarinnar fellt Meirihluti þingmanna greiddi atkvæði með fjarlagafrumvarpi bandalags borgaralegu flokkanna. 3. desember 2014 15:13 Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Innlent Fleiri fréttir Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Sjá meira
Nýjar þingkosningar í Svíþjóð 22. mars Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar tilkynnti að þann 29. desember verði boðað verði til þingkosninga í Svíþjóð. Kosningar fara fram þann 22. mars. 3. desember 2014 15:53
Fjárlagafrumvarp sænsku ríkisstjórnarinnar fellt Meirihluti þingmanna greiddi atkvæði með fjarlagafrumvarpi bandalags borgaralegu flokkanna. 3. desember 2014 15:13