Leyniþjónusta Bandaríkjanna stundaði grimmilegar pyntingar Samúel Karl Ólason skrifar 9. desember 2014 18:42 Demókratar segja pyntingar CIA hafa verið grimmdarlegar. Vísir/Getty
Skýrsla Leyniþjónustunefndar öldungadeildar bandaríska þingsins um pyntingar leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í kjölfar árásarinnar á Tvíburaturnana 11. september 2001 var birt í dag. Í henni kemur fram að CIA hafi ekki komið hreint fram varðandi pyntingarnar. Þær upplýsingar sem fengust með pyntingum voru aldrei notaðar til að koma í veg fyrir árásir eða yfirstandandi ógnir. Frá þessu er sagt á vef BBC.Samantekt Demókrata í nefndinni má sjá hér. Þar kemur fram að CIA hafi veitt stjórnmálamönnum og almenningi ónákvæmar upplýsingar til að fá leyfi til pyntinganna og þeir hafi ranglega sagt að enginn öldungadeildarþingmaður hafi verið á móti þeim. Þá kemur einnig fram að af þeim 119 sem vitað er að voru pyntaðir höfðu minnst 26 ekki brotið af sér. Þar að auki var þeim haldið mánuðum lengur en tilefni var til. CIA pyntaði menn meðal annars með því að halda þeim vakandi í allt að 180 klukkustundir, lemja þá og niðurlægja. Þá var ísköldu vatni hellt yfir andlit fanga til að líkja eftir drukknunartilfinningu, svokallað Waterboarding. Þar að auki voru fangar neyddir til að standa klukkutímum saman í óþægilegum stellingum. Barack Obama stöðvaði pyntingarnar árið 2009, skömmu eftir að hann tók við völdum. Yfirmaður CIA gaf þó frá sér yfirlýsingu í dag, þar sem hann heldur því fram að pyntingar stofnunarinnar hafi bjargað mannslífum. „Þær upplýsingar sem fengust með þessu verkefni voru mikilvægar í að auka skilning okkar á al-Qaeda og hjálpa vörnum okkar gegn hryðjuverkum enn þann dag í dag,“ sagði John Brennan, yfirmaður CIA.
Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent B sé ekki best Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Fleiri fréttir Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþoti í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjá meira