Erlent

Katalóníuþing fer fram á atkvæðagreiðslu um sjálfstæði

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Meðan héraðsþingið í Barcelona samþykkti tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu safnaðist fólk saman fyrir utan þinghúsið til að hvetja þingmenn til dáða.
Meðan héraðsþingið í Barcelona samþykkti tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu safnaðist fólk saman fyrir utan þinghúsið til að hvetja þingmenn til dáða. Nordicphotos/AFP
Héraðsþingið í Katalóníu samþykkti í gær að óska formlega eftir því að haldin verði héraðskosning um sjálfstæði. Stjórnin í Madríd þarf ekki að verða við þessari ósk, og mun áreiðanlega ekki gera það.

Engu að síður hefur sjálfstæðisumræðan í Katalóníu fengið byr undir báða vængi og mun væntanlega verða eitt af stærstu kosningamálunum í næstu þingkosningum í héraðinu.

Hópur fólks kom saman fyrir utan þinghúsið meðan atkvæðagreiðsla fór þar fram um tillöguna. Flestir í hópnum voru sjálfstæðissinnar og hvöttu þingmennina til þess að samþykkja, en þarna voru einnig nokkrir sambandssinnar, sem veifuðu spænska fánanum og hrópuðu: „Katalónía er Spánn!“

Víðar í Evrópu hafa sjálfstæðishreyfingar komist á nokkuð góðan skrið. Þannig búa nú Flæmingjar í Belgíu sig undir kosningar í vor, þar sem þeir munu reyna að komast til meiri áhrifa. Í Skotlandi hefur síðan verið boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði, og verður hún haldin 18. september á þessu ári.

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur ítrekað lýst yfir andstöðu sinni við héraðsatkvæðagreiðslu í Katalóníu um sjálfstæði. Hann segir stjórnarskrá landsins, sem er frá 1978, ekki gera ráð fyrir því að héröð landsins geti fengið sjálfstæði. Þá stendur hann fast á því að vilji menn láta fara fram atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu, þá verði sú kosning að fara fram á landsvísu þannig að allir kosningabærir Spánverjar fái tækifæri til að segja sína skoðun.

Artur Mas, héraðsforseti Katalóníu, hóf baráttu sína fyrir sjálfstæði eftir að hafa reynt, en mistekist, árið 2012 að ná fram hagstæðari samningum við stjórnina í Madríd um fjármál héraðsins.

Íbúar Katalóníu eru 7,5 milljónir, en Katalónía er eitt öflugasta hérað Spánar. Framleiðslan þar nemur fimmtungi af þjóðarframleiðslu Spánar.

Bæði Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið hafa hins vegar bent Katalóníubúum á að nýtt ríki fengi ekki sjálfkrafa aðild að þessum samtökum, heldur þurfi Katalóníuríki að leggja fram umsókn um aðild og fara í gegnum sams konar aðildarviðræður og önnur lönd hafa þurft að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×