Heróín oftar nefnt af sprautufíklum á Vogi Svavar Hávarðsson skrifar 10. nóvember 2014 07:00 „
Þetta gæti verið vísbending um að eitthvað sé að breytast. Það segir mikið ef menn hafa áhuga á þessu efni og eru að tala um það, og nefna það í þessari könnun. Þá er það aukin áhætta að það komi, og við vitum ekki hvað þetta táknar. Það gæti táknað undanfara að heróínneyslu, það er ekkert útilokað,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. SÁÁ hefur frá árinu 2000 kannað verðlag á ólöglegum vímuefnum á götunni. Þar er kannað hvaða vímuefni sjúklingar hafa keypt tvær vikur fyrir innritun og hvað þau kostuðu. Allir sjúklingar sem hafa heilsu til taka þátt í könnuninni sem er talin gefa raunsæja mynd af markaðnum á hverjum tíma. Könnunin vakti á dögunum athygli á aukinni neyslu á sterka verkjalyfinu OxyContin, sem hefur verið mikið vandamál í Bandaríkjunum. Í nefndri könnun kemur einnig fram að á undanförnum átta mánuðum nefna innritaðir sjúklingar heróín, og hvað það kostar, jafn oft og átta ár þar á undan. Aðeins er um fá skipti að ræða, eða fjögur á þessu ári og fjögur á tímabilinu 2006 til 2013. Þetta vekur athygli þar sem heróín hefur aldrei verið í umferð á Íslandi svo nokkru nemur, en SÁÁ hefur þó varað við því að það gæti breyst í ljósi fjölgunar sprautufíkla hérlendis. Hefur þetta jafnan verið talið merki um að ólöglegi vímuefnamarkaðurinn á Íslandi væri ekki eins þróaður og ástandið hér miklu betra en hjá nágrannaþjóðum okkar. Allir sérfróðir eru sammála um að ástandið hér mundi versna um allan helming ef heróínfíklar yrðu til á Íslandi, eins og segir á heimasíðu SÁÁ. Þórarinn tekur samt skýrt fram að ekkert bendi til þess að heróínneysla sé snarlega að aukast þrátt fyrir upplýsingarnar úr könnuninni. Hann útilokar ekki að þeir sem gefa þær hafi nýlega verið erlendis þar sem heróín er viðvarandi vandamál, t.d. í Kaupmannahöfn. Þórarinn segir að það sem einkennir breytingar á ólöglega vímuefnamarkaðnum síðasta áratuginn sé innkoma vanabindandi lyfja sem læknar ávísa - eða læknadópið. „Við höfum reyndar lent í faraldri sem er engu betri en heróín, sem er morfínfaraldurinn sem hér gekk yfir, og morfín er talsvert mikið misnotað enn hér á landi,“ segir Þórarinn og vísar til lyfja eins og kontalgíns, sem mikið var í umræðunni hér á landi fyrir skemmstu.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira