Lögregla lokar stórum hluta miðborgar Stokkhólms vegna rána Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2014 10:27 Lögregla er búin að loka af stórum hluta miðborgar sænsku höfuðborgarinnar. Vísir/AFP
Sprengjuhótanir hafa borist gegn tveimur bönkum í tengslum við rán í miðborg Stokkhólms. Lögregla er búin að loka af stórum hluta miðborgar sænsku höfuðborgarinnar. „Við bíðum nú sprengjusérfræðinga sem ætla að rannsaka pakkana sem grunur leikur á að séu sprengjur,“ segir Eva Nilsson, talsmaður lögreglunnar í samtali við Dagens Nyheter. Lögreglu barst fyrst tilkynning rétt eftir klukkan 8:30 í morgun frá starfsfólki Handelsbanken við Östermalmstorg þar sem maður hafði komið inn í bankann og krafist peninga. Þegar maðurinn yfirgaf bankann skildi hann eftir pakka sem starfsfólk óttaðist vera sprengja og hljóp út úr bankanum. „Fimm mínútum síðar barst tilkynning um að maður hafði komið inn á aðalskrifstofu Nordea við Smålandsgatan, skilið eftir pakka, kallað „sprengjuhótun“ og svo hlaupið í burtu,“ segir Nilsson. Um korteri síðar barst svo þriðja tilkynningin, í þetta skiptið frá skrifstofu sem verslar með gjaldeyri á Holländaregatan, þar sem maður hafði rænt skrifstofuna og skilið eftir pakka sem starfsfólk óttaðist að væri sprengja. Lögregla hefur beint þeim orðum til almennings í nágrenninu að halda sig fjarri gluggum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fleiri fréttir „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Sjá meira