Samtök iðnaðarins gagnrýna úrskurðarnefnd um upplýsingamál Sveinn Arnarsson skrifar 5. september 2014 07:00 Úrskurðurinn gæti breytt framtíðarskipulagi útboðsmála hins opinbera Vísir
Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýna úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að sveitarfélaginu Ölfusi sé skylt að afhenda trúnaðargögn varðandi tilboð í sorphirðu í bæjarfélaginu. „Þetta mál vísar út fyrir sig og gæti haft veruleg áhrif á útboðsmarkað hér á landi,“ segir Sigurður B. Halldórsson, lögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu, 24. júlí síðastliðinn, að sveitarfélaginu Ölfusi væri skylt að veita samkeppnisaðila þess sem bauð lægst í sorphirðu, aðgang að upplýsingum um tilboð þess sem og fylgigögnum. Þessi tilboðsgögn voru trúnaðarmál milli sveitarfélagsins og lægstbjóðanda. Lægstbjóðandi telur slíkar upplýsingar á samkeppnismarkaði ekki eiga að rata í hendur samkeppnisaðila.Sigurður B. Halldórsson, lögfræðingur Samtaka iðnaðarinsUndir þessi sjónarmið tekur Sigurður B. Halldórsson, lögfræðingur SI. Hann telur að verði fyrirtækjum á opnum markaði gert skylt að veita samkeppnisaðilum ítarlegar upplýsingar um tilboðsgerð sína geti það haft gríðarlegar afleiðingar í för með sér. „Í málinu er deilt um hvort tilboðsskrár bjóðenda í opinberum útboðum verða strax aðgengilegar samkeppnisaðilum við opnun tilboða. Slíkt hefur hvorki tíðkast hér á landi né erlendis og því teljum við rétt að dómstólar skeri úr um réttmæti þess. Þessi úrskurður getur á margan hátt breytt framtíðarskipulagi útboða hins opinbera. Í grunninn er skoðun Samtaka iðnaðarins sú að fyrirtæki eigi ekki að geta grandskoðað tilboðsgerðir annarra fyrirtækja. Samkeppnishagsmunir eru það ríkir.“ Samband íslenskra sveitarfélaga er einnig á þeirri skoðun að full ástæða sé að látið verði reyna á niðurstöðu úrskurðarnefndar fyrir dómstólum. Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur sambandsins, segir að trúnaður eigi að ríkja um meðferð gagna. „Óskoruð meginregla á verktakamarkaði er að trúnaður ríki um sundurliðuð einingaverð í tilboðum. Þessi meginregla og venja henni tengd styðst meðal annars við veigamikil samkeppnissjónarmið. Að mati sambandsins er kaupanda í slíku ferli því bæði rétt og skylt að tiltaka að trúnaður ríki um meðferð gagna. Niðurstaða úrskurðarnefndar grefur undan trúnaðarákvæðum sem eru mikilvæg trygging fyrir því að sveitarfélög fái eins hagstæð tilboð í verk og þjónustu og mögulegt er.“
Tengdar fréttir Dómgreindarbrestur af hálfu bæjarstjórans að hygla fjölskyldunni Jón Þórir Frantzsson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, efast um hæfi Gunnsteins Ómarssonar, bæjarstjóra Ölfuss, við afgreiðslu sorphirðuútboðs í bænum þar sem útboðsgögnum er haldið leyndum. 3. september 2014 18:01 „Ekki verið að gæta hagsmuna Ölfuss“ Ármann Einarsson, oddviti D-lista í minnihluta Ölfuss, vill fá öll gögn upp á borðið 3. september 2014 09:00 Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð. 3. september 2014 06:45 Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Erlent Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Fleiri fréttir Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Kýldi í rúðu leigubifreiðar og kastaði í hana flösku Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Sjá meira
Dómgreindarbrestur af hálfu bæjarstjórans að hygla fjölskyldunni Jón Þórir Frantzsson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, efast um hæfi Gunnsteins Ómarssonar, bæjarstjóra Ölfuss, við afgreiðslu sorphirðuútboðs í bænum þar sem útboðsgögnum er haldið leyndum. 3. september 2014 18:01
„Ekki verið að gæta hagsmuna Ölfuss“ Ármann Einarsson, oddviti D-lista í minnihluta Ölfuss, vill fá öll gögn upp á borðið 3. september 2014 09:00
Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð. 3. september 2014 06:45