Úrvalslið Eiðs Smára | Sex frá Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. maí 2014 12:52 Eiður Smári valdi sex fyrrum samherja sína frá Barcelona í úrvalslið sitt. Vísir/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Club Brugge og markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, hefur leikið með mörgum frábærum leikmönnum á ferli sem spannar tvo áratugi.SkySports fékk Eið til að velja úrvalslið með bestu samherjum sínum á ferlinum. Hann valdi sex leikmenn sem hann spilaði með hjá Barcelona, tvo samherja frá bæði Chelsea og PSV og einn frá tíma sínum hjá Tottenham. Hér má sjá liðið sem Eiður valdi og brot af því sem hann hafði að segja um hvern og einn leikmann.Markvörður: Victor Valdes | Það var erfitt að velja á milli Victors Valdes og Petr Cech, en ég gef Valdes mitt atkvæði því hann er aðeins betri með boltann á löppunum en Cech. Hann býr yfir miklum sprengikrafti og er mjög fljótur út af línunni.Hægri bakvörður: Dani Alves | Hann kostaði Barcelona 30 milljónir evra og fólk spurði sig hvort að það væri réttlætanlegt að eyða svona hárri fjárhæð í bakvörð, en núna, nokkrum árum síðar, efast ég um að nokkur muni hvað hann kostaði.Vinstri bakvörður: Gareth Bale | Þú færð líklega ekki mest út úr honum í þessari stöðu en þetta er Gareth Bale. Í upphafi ferils hans hjá Tottenham virtist liðið tapa í hvert sinn sem hann spilaði en þegar hann var færður aðeins framar á völlinn sprakk hann út.Miðvörður: Marcel Desailly | Kletturinn, eins og við kölluðum hann hjá Chelsea. Leiðtogi, fyrirliði, heimsmeistari.Miðvörður: Jaap Stam | Ég átti erfitt með að velja á milli Johns Terry, Carles Puyol og Gerards Pique en ég valdi Jaap Stam.Eiður Smári og Claude Makalele í baráttunni við Ronaldinho. Eiður valdi þá báða í úrvalsliðið sitt.Vísir/GettyVarnarsinnaður miðjumaður: Claude Makalele | Þessi staða var nefnd í höfuðið á honum. Hann var sá sem batt liðið saman og var alltaf á réttum stað til að brjóta sóknir andstæðinganna á bak aftur.Miðjumenn: Andres Iniesta og Xavi | Ég tala um þessa tvo í sömu andrá. Þegar talað er um lið Barcelona á síðustu árum, þá geturðu ekki sleppt að minnast á hvernig þessir tveir leikmenn stjórnuðu leiknum.Framherji: Ronaldinho | Þetta var ekki erfið ákvörðun. Hann er fullkomnasti leikmaður sem ég hef séð. Það kæmi mér ekki á óvart ef hann gæti látið boltann tala. Hann var það góður að hann gat gert allt.Framherji: Ronaldo | Hinn brasilíski Ronaldo. Við sömdum við PSV í sömu vikunni. Ég var bara 16 ára krakki en hann var þegar orðinn fullþroskaður maður, 18 ára að aldri. Hann bjó yfir ótrúlegum hraða, hæfileika til að skora og fara framhjá varnarmönnum.Framherji: Lionel Messi | Ég þarf ekkert útskýra þetta? Hann var að ég held 19 ára þegar ég kom til Barcelona og ég sá þennan stórkostlega leikmann breytast í besta leikmann í heimi.
Fótbolti Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Fótbolti Fleiri fréttir Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Lukaku leitar sér að nýju liði Mexíkó og Argentína styðja Infantino Bjarki söðlar um á Ítalíu og syngur lagið hans Orra Gísli Gotti til Þýskalands Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Ætlar að vinna ítölsku úrvalsdeildina Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöld Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Uppgjörið: Valur-Nordsjælland 0-2 | Róðurinn verður þungur í Danmörku Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Samningur í höfn hjá Vinicius Junior og Real Madrid Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Leikmannasamtökin segja um djúpstæða misbeitingu á valdi forsetans að ræða Stóð við loforð og litaði hárið bleikt Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Fótboltamaður grimmilega myrtur eftir misheppnað rán Real Madrid búið að kaupa Diomande Sjá meira