Franskur faðir tapar baráttu sinni Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2014 13:19 Hinn 29 ára Yoan Delorme ræddi við fjölmiðla eftir að niðurstaða lá fyrir. Vísir/AFP
Franskur áfrýjunardómstóll hefur hafnað kröfu fransks föður um forræði yfir líffræðilegum syni sínum sem móðir drengsins hafði boðið til ættleiðingar. Hinn 29 ára Yoan Delorme var í fangelsi þegar sonur hans fæddist og barnsmóðir hans skrifaði hvorugt nafn foreldranna á fæðingarvottorð barnsins. Dómstóll í Nantes hafði áður úrskurðað Delorme í vil, en fulltrúar yfirvalda áfrýjuðu málinu og sögðu barnið hafa aðlagast vel í faðmi nýrrar fósturfjölskyldu. Delorme hyggst áfrýja þessum nýja dómi til æðsta dómstóls Frakklands og Mannréttindadómstóls Evrópu ef þörf krefur.Í frétt BBC kemur fram að áfrýjunardómstóllinn hafi einnig úrskurðað að Delorme hafi ekki rétt til að hitta son sinn. „Þetta er þjófnaður af hálfu dómstólsins,“ sagði Delorme í samtali við fréttamenn þegar niðurstaðan lá fyrir.Til fósturforeldra tveggja mánaða Delorme var ekki í neinu sambandi við barnsmóður sína eftir að hún var komin þrjá mánuði á leið, en drengurinn kom í heiminn í aprílmánuði 2013. Delorme fullyrðir að hann hafi ekki vitað til þess að hann hafi ekki verið skráður sem faðir barnsins. Drengnum var svo komið fyrir í forsjá fósturfjölskyldu í Loire-Atlantique í vesturhluta Frakklands í júlímánuði 2013, þegar barnið var rúmlega tveggja mánaða gamalt. Nokkrum klukkustundum síðar, sama dag, krafðist Delorme þess að drengurinn yrði ekki ættleiddur og fullyrti að hann væri faðir barnsins. Yfirvöld sögðu hann hins vegar ekki hafa greint frá fyrirætlunum sínum varðandi drenginn og hvort hann hafi ætlað að sjá um barnið. Fósturforeldrar drengsins eru báðir á fimmtugsaldri og segja lögmenn þeirra að þau hafi upplifað „helvíti“ í tengslum við þetta mál.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira