Palestínskur ráðherra lést á mótmælafundi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. desember 2014 07:15 Ísraelskur hermaður sést hér taka ráðherrann hálstaki skömmu áður en hann lést. vísir/afp
Fangelsismálaráðherra Palestínu, Ziad Abu Ein, lést í gær eftir átök við ísraelska hermenn. Abu Ein var ásamt tólf mótmælendum að mótmæla landtöku Ísraelsmanna með því að planta ólífutrjám á svæðum sem nágrannar þeirra ætla sér að taka yfir næst. Er mótmælendurnir nálguðust svæðið biðu þeirra ísraelskir hermenn. Sjónarvottum ber ekki saman um hve mikil átök brutust út en ljóst er að á einhverjum tímapunkti var táragashylkjum skotið til að leysa hópinn upp. Eitt hylkjanna hæfði Abu Ein í brjóstið og drógu áverkarnir hann til dauða áður en hann komst á spítala í Ramallah. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur fordæmt morðið og sagt það villimannlegt. Hann lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg og sagði að gripið yrði til ótilgreindra aðgerða vegna dauða Abu Ein. Ban Ki-Moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur kallað eftir því að fram fari rannsókn á atvikinu og biður deiluaðila um að reyna að koma í veg fyrir átök í kjölfar þessa. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Abu Ein lenti saman við Ísraela en árið 1979 hlaut hann dauðadóm fyrir þátt í sprengingu sem grandaði tveimur unglingum. Honum var sleppt árið 1985 í skiptum fyrir ísraelska fanga.
Mest lesið Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Mælir gegn heilskimun Intuens Innlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Innlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Fleiri fréttir Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Sjá meira