"Við erum bara orðlaus yfir þessu“ 10. febrúar 2014 23:19 Unnur Pétursdóttir, formaður félags sjúkraþjálfara. visir/stefan
Nýir samningar sjúkraþjálfara hafa enn ekki verið samþykktir af heilbrigðisráðherra þrátt fyrir að hafa fengið frest í tvígang.„Við erum bara orðlaus yfir þessu“ segir Unnur Pétursdóttir, formaður félags sjúkraþjálfara. „Við erum að vinna fyrir um það bil þrjúhundruð sjúkraþjálfara sem koma til með að mæta í vinnuna á morgun og vita ekkert hvar þeir standa.“ 31. janúar barst félagi sjúkraþjálfara tilboðssamningur frá Sjúkratryggingum Íslands. Í þeim samning fólst hófleg taxtahækkun ásamt ýmsum málum sem áttu að hagræða bæði ríkisstjórninni og sjúkraþjálfurum sem vinna fyrir utan spítala og opinberar stofnanir. Ákvað félagið að samþykkja tilboðið eftir að málið var tekið upp á fjölmennum félagsfundi sjúkraþjálfara. Þegar búið var að ganga frá samningnum bað ríkið um frest til 6. febrúar til þess að vinna betur í samningnum. Þegar sá frestur rann út bað ríkið um annan frest til 10. febrúar en þá fóru að renna tvær grímur á Unni, formann félagsins.„Okkur þykir það merkilegt og algjörlega óskiljanlegt hvers vegna þau vilji ekki gefa okkur nein svör.“ segir Unnur„Kostnaður ríkisins er mun meiri við að gera ekki samning við okkur. Þetta eru um 40 þúsund skjólstæðingar sem að þurfa þá sjálfir að fara til sjúkratryggingana að sækja um endurgreiðslu í stað þess að láta sjúkraþjálfarana sjá um þá vinnu.“ En eitt helsta atriðið í samningnum snerist um að sjúkraþjálfararnir gætu sjálfir sótt um niðurgreiðslu kostnaðar hjá sjúkratryggingafélaginu í stað þess að láta skjólstæðinga sína greiða fullt verð og sækja síðan sjálfir um endurgreiðslu hjá ríkinu.„Sumir skjólstæðingar okkar eru rúmfastir og þurfa að fá sjúkraþjálfara heim til sín. Okkur finnst fáránlegt að krefja þetta fólk um að fara sjálft að sækja um endurgreiðslu.“ segir Unnur.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira