Erlent

Páfinn segir kenninguna um Miklahvell sanna

Bjarki Ármannsson skrifar
Guð er ekki töframaður sem getur gert hvað sem er, að mati Frans páfa.
Guð er ekki töframaður sem getur gert hvað sem er, að mati Frans páfa. Vísir/AFP
Þróunarkenningin og kenningin um Miklahvell eru sannar og stangast ekki á við hugmyndina um að Guð hafi skapað heiminn. Þetta er meðal þess sem kom fram í nýlegu erindi Frans páfa fyrir Vísindaráði Páfagarðs.

„Þegar við lesum um sköpunina í Biblíunni er hætta á því að við ímyndum okkur að Guð hafi verið töframaður með sprota sem gat gert hvað sem er,“ sagði Páfinn. „En þannig er það ekki.“

Breska blaðið The Independent hefur eftir fræðimönnum að Páfinn sé með þessu að reyna að draga úr vantrausti meðal Kaþólikka í garð vísinda. Forveri Frans í starfi, Benedikt sextándi, var af mörgum sagður kynda undir slíkt vantraust með því að styðja sköpunarkenninguna og kenninguna um vithönnun.

„Miklihvellur, sem við teljum í dag upphaf heimsins, útilokar ekki inngrip almáttugs skapara,“ sagði Páfinn jafnframt. „Þvert á móti kallar kenningin eftir slíku inngripi. Þróun í náttúrunni stangast ekki á við hugmyndina um sköpun Guðs, því þróun þarfnast þess að skapaðar hafi verið lífverur sem þróast.“

Kaþólska kirkjan hefur lengi haft það orð á sér að vera óvinur vísindamanna. Til að mynda neyddi kirkjan stjörnufræðinginn Galíleó að draga til baka kenningu sína um að Jörðin snerist um Sólina og sagði kenninguna „trúvillu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×