Herinn tók öll völd Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. nóvember 2014 11:30 Fjöldi manns safnaðist saman fyrir utan höfuðstöðvar hersins í Ougadougou og krafðist þess að herinn tæki völd. Vísir/AFP
Honoré Traoré herforingi er tekinn við völdum í Búrkína Fasó. Blaise Compaoré forseti sá sér ekki annað fært en að láta af embætti eftir fjölmenn og áköf mótmæli undanfarna daga. Stefnt er á kosningar innan þriggja mánaða. Mótmælendurnir, sem kveiktu meðal annars í þinghúsinu í höfuðborginni Ougadougou, sættu sig ekki við annað en að forsetinn segði tafarlaust af sér. Hann hafði annars hugsað sér að bjóða sig fram einu sinni enn, en hann hafði setið í embættinu í 27 ár og mátti samkvæmt stjórnarskrá landsins ekki sitja í fleiri kjörtímabil. Þessu hugðist hann breyta, en stjórnarandstæðingar höfðu mánuðum saman skorað á hann að láta sér nægja að sitja út þetta kjörtímabil, hið fimmta í röðinni. Upp úr sauð á fimmtudaginn þegar Compaoré ætlaði að láta þingið greiða atkvæði um stjórnarskrárbreytingu, sem myndi heimila honum að sitja lengur. Sjálfur segist hann hafa ákveðið að láta undan til að tryggja frið í landinu. „Hvað mig sjálfan varðar, þá tel ég mig hafa gert skyldu mína,“ sagði hann í gær. „Ég lýsi því yfir að ég afsala mér völdum til þess að efna til frjálsra og gagnsærra kosninga eftir 90 daga,“ sagði hann í gær. Compaoré hefur á seinni árum notið nokkurrar virðingar fyrir sáttastörf og inngrip í alvarlegar innanríkisdeilur í nokkrum Afríkuríkjum. Hann hefur hins vegar verið sakaður um að hafa stutt uppreisnarsveitir á Fílabeinsströndinni og í Angóla, auk þess sem hann studdi Charles Taylor, hinn herskáa uppreisnarmann í Líberíu sem náði þar völdum en situr nú sakaður um stríðsglæpi í fangelsi Alþjóðasakadómstólsins í Haag. Heima fyrir hefur hann hins vegar haldið niðri allri stjórnarandstöðu. Hann hélt velli þrátt fyrir fjölmenn mótmæli og uppreisn innan hersins árið 2011. Á tímabili réðust hermenn inn í forsetahöllina, þannig að Compaoré þurfti að flýja.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira