Áttræð kona fryst lifandi Samúel Karl Ólason skrifar 4. apríl 2014 14:02
Maria de Jesus Arroyo, var sögð látin á spítala í júlí 2010 eftir að hafa fengið hjartaáfall, 80 ára gömul. Þá var hún færð í líkhús sjúkrahússins Boyle Heights og sett í frysti. Dögum seinna þegar vitja átti líksins fannst hún í frystinum með brotið nef og sár á andlitinu. Eiginmaður Maríu og átta börn þeirra höfðuðu upprunalega mál gegn sjúkrahúsinu vegna slæmrar meðferðar á líki hennar. Við meðferð málsins í desember 2011 sagði sérfræðingur þó að hún hefði verið á lífi í frystinum og vaknað vegna kuldans og reynt að sleppa úr prísundinni. Sagt er frá þessu á vef CBS. „Starfsmenn líkhússins fundu Maríu á grúfu í líkpokanum, sem sagði sérfræðingum að hún hafi verið að reyna að komast út,“ sagði Scott Schutzman, lögfræðingur fjölskyldunnar. Í ljós kom að hún hafi ekki látist af hjartaáfallinu, heldur vegna köfnunar og ofkælingar. Fjölskyldan dró kæru sína til baka í maí 2012 og höfðaði nýtt mál vegna læknamistaka. Dómari vísaði málinu hins vegar frá vegna þess að málið hefði verið lagt fram of seint. Sérstakur afrýjunardómstóll hefur nú úrskurðað að fjölskyldan hefði ekki haft neina ástæðu til að gruna að hún hafi verið á lífi í frystinum áður en sérfræðivitnisburðurinn kom fram. Málið má því fara fyrir dómstóla. Hér að neðan má sjá frétt CBS um málið.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira