Ekkert embætti á Akranesi Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. október 2014 07:00 Akranes er fjölmennasti kaupstaðurinn í umdæminu og Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri mælir með að aðalstöð lögreglustjóra verði á Akranesi. vísir/gva
Í drögum að nýrri reglugerð um umdæmi lögreglustjóra og umdæmi sýslumanna sem innanríkisráðuneytið hefur birt á heimasíðu sinni, kemur fram að ekki er fyrirhugað að aðalstöð lögreglustjóra eða skrifstofa sýslumanns fyrir Vesturland verði á Akranesi.Ólafur Adolfsson, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar, er gáttaður á drögum ráðuneytisins, enda kaupstaðurinn langfjölmennasti byggðakjarninn á Vesturlandi, með um 6.700 íbúa, um þrisvar sinnum fleiri íbúa en næst stærsti byggðakjarninn. „Það kemur okkur verulega á óvart ef reglugerðardrögin verða staðfest óbreytt,“ segir Ólafur. Í drögunum kemur fram að koma eigi sýslumannsembættinu fyrir í Stykkishólmi og að embætti lögreglustjóra verði í Borgarnesi. Samkvæmt Ólafi hefur enginn rökstuðningur komið fram um hvers vegna ráðherra velur að setja embættin á ofangreinda staði. Í reglugerðinni verður embættum sýslumanna fækkað úr 24 í níu og embættum lögreglustjóra verður fækkað úr fimmtán í níu. Yfirstjórn lögreglu var aðskilin frá yfirstjórn sýslumannsembætta. Akurnesingar missa þar með bæði lögreglustjóra og sýslumann, sem eru einn og sami embættismaðurinn í dag. „Í grunninn erum við alveg sammála sameiningu embætta en við reiknuðum með að að minnsta kosti annað embættið yrði staðsett á Akranesi,“ segir Ólafur.ólafur adolfssonBæjarráðið og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraneskaupsstaðar, hafa sent umsögn til innanríkisráðuneytisins þar sem drögin að reglugerðinni eru gagnrýnd með ýmsum rökum. „Við fórum á fund með innanríkisráðherra í sumar og fengum fullvissu um að sá sem skipaður yrði lögreglustjóri í umdæminu hefði mikið um það að segja hvar skrifstofa lögreglustjóra yrði staðsett,“ segir Ólafur.Úlfar Lúðvíksson, nýskipaður lögreglustjóri umdæmisins, sendi bæjarstjóra Akraness og sveitarstjóra Borgarbyggðar tölvupóst í síðasta mánuði, þar sem hann skýrir og rökstyður það mat sitt að aðalstöðvar lögreglustjóra skuli vera á Akranesi. Úlfar segir meðal annars í póstinum að eftir að hafa skoðað aðstöðu lögreglu á Snæfellsnesi, Borgarnesi og á Akranesi telji hann að heppilegast sé að aðalstöð lögreglustjóra verði á Akranesi. Hann bætir við að aðstaða lögreglunnar á Akranesi sé til fyrirmyndar, enda þar fjölmennasta lögregluliðið á Vesturlandi. Lögreglustöðin í kaupstaðnum sé sú eina sem er með sólarhringsvakt og embættið þurfi að sýna styrk sinn í fjölmennasta byggðakjarnanum. Bæjarráðið sendi umsögnina í gær og bíður nú niðurstöðu ráðuneytisins.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira