Svíar viðurkenna sjálfstæði ríkis Palestínumanna í dag Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2014 08:50 Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Svíþjóðar hyggst viðurkenna sjálfstæði ríkis Palestínumanna síðar í dag. Margot Wallström utanríkisráðherra tilkynnti um ákvörðunina í aðsendri grein í Dagens Nyheter í morgun. Wallström segir að þjóðréttarleg skilyrði viðurkenningarinnar séu þegar uppfyllt, þrátt fyrir að Palestína ráði ekki yfir landsvæði með skilgreindum landamærum. Tilkynningin hefur vakið mikla athygli bæði í Ísrael og Palestínu. Samir Abu Eid, fréttaritari sænska ríkissjónvarpsins á Gasa, segir að auk þeirrar gleði sem Palestínumenn finni til, þá blandist hún óskum um efnislega aðstoð. „Meðal Palestínumanna á Gasa og Vesturbakkanum má skynja mikla gleði. Þetta vekur von, sem er meðal þess sem Svíar vilja,“ segir Eid. „Samtímis verður maður að muna að Ísraelar eru mjög gagnrýnir á ákvörðunina. Þeir líta svo á að viðurkenningin komi of snemma og að fyrst sé nauðsynlegt að ná samkomulagi um varanlegan frið. Viðbrögðin þaðan eru að þeir undrast að þetta hafi gengið svo hratt fyrir sig.“ Eid segir að ákvörðun sænsku ríkisstjórnarinnar muni ekki hafa neinar áþreifanlegar afleiðingar fyrir íbúa Palestínu á næstu misserum. Eid greinir frá því að margir hefðu frekar þegið annars konar aðstoð. „Margir vilja meina að við þurfum áþreifanlega hjálp. Aðstæðurnar munu ekki breytast vegna ákvörðunarinnar. Svíþjóð vill koma friðarviðræðum aftur á skrið, en hér á Gasa má finna fyrir mikilli gremju og vonleysi. Mögulega getur þetta gefið von um betri framtíð innan fjögurra, fimm eða tíu ára.“ Ísland viðurkenndi sjálfstæði Palestínu árið 2011.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Sjá meira