Kebab orðið að pólitísku bitbeini í Frakklandi Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2014 11:56 Um 10.200 kebabstaðir séu nú starfræktir í Frakklandi. Vísir/AFP
Kebab er orðið að pólitísku deilumáli í Frakklandi. Fulltrúar hægri öfgaflokksins Front National segja vinsældir kebabsins skýrt merki um „íslamsvæðingu“ landsins.Í frétt Reuters segir að fjórir kebabstaðir hafi opnað í Blois í Loire-dalnum í síðasta mánuði. Liðsmenn Front National segjast allt annað en ánægðir með þróunina. „Sögulegur miðbær Blois, gimsteinn franskrar sögu, er að breytast í austurlenska borg.“ Þjóðerniskennd Frakka er nátengd mat og list og segir Front National útbreiðslu kebabstaða skýrt merki um íslamsvæðingu landsins. Í kosningaherferðum flokksins fyrr á árinu var þróunin harðlega gagnrýnd og töluðu frambjóðendur flokksins um „kebabsvæðingu“ landsins. Front National hefur einnig gagnrýnt útbreiðslu halalkjöts, sem þeir segja brjóta í bága við franskar hefðir. Thibaut Le Pellec, talsmaður síðunnar KebabFrites.com sem gefur mismunandi kebabstöðum í Frakklandi einkunn, segir í viðtali við Reuters að matrétturinn sé orðinn að einkennistákni fyrir þau vandamál sem landið á við að stríða. „Að ákveðnu leyti endurspeglar kebabinn öll þau vandamál sem tengjast innflytjendum og aðlögun þeirra að frönsku samfélagi.“ Um 10.200 kebabstaðir séu nú starfræktir í Frakklandi, en rétturinn sjálfur er uppruninn í Mið-Austurlöndum.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Fleiri fréttir Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Sjá meira