Bandarískur lögreglumaður ættleiddi misnotuð fósturbörn Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2014 14:37 Lögreglumaðurinn Jack Mook.
Bandaríski lögreglumaðurinn Jack Mook ættleiddi í síðasta mánuði tvo bræður sem hann hafði kynnst í sjálfboðaliðastarfi í Pittsburgh og verið beittir ofbeldi af fyrri fósturforeldrum sínum.Sjónvarpsstöðin CBS sagði sögu Mook í innslagi þar sem hann segir frá því hvernig hann hafi kynnst bræðrunum Jessee and Josh Lyle í sjálfboðaliðastarfi sínu sem hnefaleikakennari í Steel City Boxing líkamsræktarstöðinni. „Flestir krakkanna sem koma í þessa líkamsræktarstöð eru af götunni. Margir hafa fæðst inn í fátækt.“ Hinn einstæði Mook sagist hafa líkað vel við hina 11 og 15 ára bræður en dag einn fyrir nokkrum árum hættu drengirnir skyndilega að sækja hnefaleikatímana. Mook segist strax hafa gert sér grein fyrir því að eitthvað amaði að. Hann fór á stjá og hafði upp á eldri bróðurnum. „Hann leit skelfilega út – með bauga undir augunum – tólf ára gamall.“ Mook komst í kjölfarið að því að bræðurnir bjuggu á fósturheimili, hjá fósturforeldrum sem hafi misnotað drengina og vanrækt. „Lífsskilyrði þeirra voru verri en nokkur annar krakki hefur þurft að búa við í borginni Pittsburgh. Ég fékk nóg af þessu.“ Mook segist hafa tekið hlutina í eigin hendur, innheimt nokkra greiða og fengið yfirvöld til að koma bræðrunum fyrir á nýju fósturheimili – heimili Mooks sjálfs. „Ég hef aldrei sofið betur en þá nótt,“ sagði Josh. Mook hefur nú verið fósturfaðir bræðranna í tvö ár og segist enn vera að aðlagast nýju lífi. „Heimavinnan ein er grimm,“ segir Mook glaður í bragði og bætir við að hann sé ánægður með þær breytingar sem drengirnir hafi haft á líf sitt. „Já, þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið í mínu lífi.“ Innslag CBS má sjá að neðan.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Sjá meira