Hengdir í almenningsgarði öðrum til varnaðar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2013 14:30 Íranar setja á svið hengingu til að mótmæla aftökuforminu. Myndin tengist fréttinni ekki. Nordicphotos/AFP
Um 300 manns söfnuðust saman fyrir sólarupprás í almenningsgarði í Tehran í Íran á sunnudagsmorgun þegar tveir menn á þrítugsaldri voru teknir af lífi með hengingu. Mennirnir hlutu dauðadóm fyrir að stinga mann á götu úti, ræna bakpoka hans og innihaldi að verðmæti um 2500 íslenskra króna. „Færum okkur þangað. Ég held að við fáum betra sjónarhorn," sagði áhorfandi í almenningsgarðinum við konu sína samkvæmt frétt New York Times. Hluti fólks var mættur til þess að mótmæla en aðrir til þess að verða vitni að aftökunni. Henging er þekkt aftökuform í Íran en þó alla jafna ekki fyrir augum almennings. Flestar hengingar eiga sér stað innan veggja fangelsa en aukin glæpatíðni í landinu hefur orðið til þess að stjórnvöld í Íran telja sig þurfa að senda skýr skilaboð til glæpamanna. Engin tölfræði er til yfir aukna glæpatíðni en stjórnvöld segja aukningu í ofbeldisglæpum. Í flestum tilfellum er um unga karlmenn að ræða sem ráðast á vegfarendur með með hníf að vopni í þeim tilgangi að ræna þá. Mennirnir tveir, sem báðir voru atvinnulausir og tilheyrðu fátækum fjölskyldum, voru handteknir fyrir tveimur mánuðum. Árás þeirra á vegfaranda náðist á öryggismyndavél en þeir nutu liðsinnis tveggja manna til viðbótar sem stóðu vörð. Vegfarandinn lifði árásina af en þrátt fyrir það voru tvímenningarnir dæmdir til dauða og vitorðsmenn þeirra í tíu ára fangelsi auk 74 svipuhögga. Atvikið óhugnalega þegar vegfarandinn er rændur má sjá með því að smella hér. Varað er við myndskeiðinu sem er ekki fyrir viðkvæma. Annar þeirra sem tekinn var af lífi sagði fyrir dómi að peningarnir hefðu verið ætlaðir til þess að fjármagna skurðaðgerð fyrir móður sína. „Við þurftum peningana vegna fátæktar. Mér þykir þetta leitt," hefur New York Times eftir írönskum fjölmiðli. Dómarinn í málinu er þekktur fyrir harða afstöðu sína gagnvart glæpum. Þeir voru dæmdir fyrir „stríð gagnvart guði" en viðurlög glæpsins er dauðarefsing. Óhætt er að segja að skiptar skoðanir séu um ákvörðun stjórnvalda í Íran að standa fyrir aftökum á opinberum vettvangi. Félagsfræðingur í Íran telur aukna glæpatíðni vissulega vandamál en hún sé beintengd efnahaginum. Opinberar afökur muni ekki breyta neinu.Frétt New York Times má lesa hér.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira