Gruna bræðurna um að hafa rænt fjórðu stúlkunni 8. maí 2013 11:27 Carlos bræðurnir. Pedro Castro, Ariel Castro og Onil Castro
Alríkislögreglan í Bandaríkjunum rannskar nú hvort bræðurnir, sem rændu stúlkunum þremur og héldu föngnum á heimili eins þeirra í Cleveland tíu ár, hafi einnig rænt fjórðu stúlkunni, Ashley Summers, sem hvarf árið 2007, þegar hún var fjórtán ára gömul. Hún hvarf á svipuðum slóðum og Amanda Berry, Michelle Knight og Georgina "Gina" DeJesus, sem hurfu á árunum 2002 til 2004. Bræðurnir þrír, Pedro Castro, Onil Castro og Ariel Castro, en sá síðastnefndi átti húsið þar sem konurnar fundust, héldu þeim föngnum í áratug eins og áður hefur verið greint frá. Berry tókst að gera nágranna sínum viðvart sem varð til þess að lögreglan var kölluð til.Amanda ásamt dóttur sinni og systur.Málið er hrollvekjandi. Þannig eignaðist Berry litla dóttur í prísundinni. Talið er að ein af þremur konunum hafi orðið ólétt þrisvar sinnum en misst fóstur í öll skiptin vegna líkamlegs ofbeldis sem þær voru beittar auk þess sem þær voru vannærðar. Nágrannar Castro velta því núna fyrir sér hvernig í ósköpunum það hafi getað gerst að þremur konum hafi verið haldið föngnum svo lengi án þess að nokkur hafi áttað sig á því. Þó dúkka nú upp vísbendingar sem benda til þess að ekki hafi allt verið með felldu á heimili Castro. Til að mynda segir Nina Samoylicz, nágranni Carlos, í viðtali við CNN að hún hafi séð nakta konu í bakgarðinum hjá Carlos fyrir nokkrum árum síðan. Henni hafi fundist það fyndið í fyrstu, en sá fljótlega að eigin sögn að eitthvað var að. Hún kallaði til konunnar en þá rak Castro hana aftur inn í húsið og elti hana þangað inn sjálfur. Nina segist hafa gert lögreglu viðvart í kjölfarið, þó kannast lögreglan ekki við tilkynninguna.Ennfremur er greint frá því á fréttavef Daily mail að nágranni hafi á einum tímapunkti séð þrjár konur naktar á fjórum fótum í garðinum. Þær voru allar með hundaólar og bræðurnir héldu í taumana. Aðrir fréttamiðlar greina þó ekki frá því. Það er þó ljóst að vist kvennanna hefur verið hryllileg. Þannig greina fjölmiðlar vestan hafs frá því að keðjur hafi hangið úr loftum og að konurnar hafi verið notaðar sem kynlífsþrælar. Líkamlegt ástand kvennanna er ágætt en þær hafa þegar sameinast fjölskyldum sínum samkvæmt CNN. Rannsakandi hjá bandarísku alríkislögreglunni segir að nú verði lagt kapp á að athuga hvort Summers hafi einnig verið rænt af bræðrunum, en alríkislögreglan taldi, áður en til þessa máls kom, að hvarf hennar tengdist hvarfi hinna þriggja kvennanna sem máttu þola vítisvistina á heimili Carlos.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Sjá meira