Stjórnarandstaða Taílands hættir á þingi Bjarki Ármannsson skrifar 9. desember 2013 07:00 Andstæðingar ríkisstjórnarinnar við Lýðræðistorgið í Bangkok. Fréttablaðið/AP
Demókrataflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkur Taílands, sagði sig af þingi í gær. Þetta var gert til að mótmæla ríkisstjórn landsins sem flokkurinn telur ekki eiga rétt á sér. Chavanond Intarakomalyasut, talsmaður Demókrataflokksins, segir almenning ekki lengur sætta sig við stjórnarfar í landinu og að demókratar geti ómögulega unnið með ríkisstjórninni. Demókratar eru nátengdir baráttumönnum sem hafa undanfarið staðið fyrir mestu mótmælum í landinu um árabil. Mótmælin hafa staðið síðan í síðasta mánuði og beinast að Yingluck Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, og ríkisstjórn hennar. Fara mótmælendur fram á að hún segi af sér og að í staðinn verði svokallað „þjóðarráð“ skipað án kosninga til þess að stjórna landinu. Demókratar hafa ekki sigrað í kosningum síðan 1992 og eru leiðtogar flokksins af mörgum taldir hafa gefist upp á því að reyna. Shinawatra sagði í ræðu í gær að hún myndi „með glöðu geði“ segja af sér ef það yrði til þess að lægja öldurnar í landinu. Hún varaði hins vegar við því að ríkisstjórn sem kæmist til valda án kosninga myndi „hafa mikil áhrif á ímynd“ Taílands. Að minnsta kosti fimm hafa látist í átökum síðustu vikur og hátt í þrjú hundruð manns særst. Í dag ætla mótmælendur að fara í fjölmenna göngu á götum Bangkok, sem margir óttast að geti endað með blóðsúthellingum.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Fleiri fréttir Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Sjá meira