Erlent

Átta ára stelpa keyrir á 100 kílómetra hraða

Myndband af átta ára rússneskri stúlku að keyra bíl í Sánkti Pétursborg í Rússlandi hefur farið eins og eldur um sinu á internetinu síðustu daga. Þar sést stúlkan ná 100 kílómetra hraða á meðan móðir hennar tekur athæfið upp á myndbandsupptökuvél.

Búið er að horfa á myndskeiðið um 500 þúsund sinnum á Youtube. Faðir hennar hvetur hana áfram og segir: „Koma svo! Farðu hraðar, að minnsta kosti 100! Ekki vera hrædd" Þá virðist stúlkan ekki einu sinni vera í bílbelti.

Móðirin setti myndskeiðið á Facebook-síðu sína og hefur ríkissjónvarpið í landinu sýnt það. Lögreglan rannsakar nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×