Erlent

Seldi nafn barnsins á netinu - Hvaða nafn velja netverjar?

Þunguð kona í Bandaríkjunum, Natasha Hill, hefur falið netverjum að hlutast til um nafn ófædds barns síns. Þó ótrúlegt megi virðast sóttist hin 26 ára gamla Natasha eftir því að leyfa internetinu að skera úr um nafngiftina. Hún er komin þrjá mánuði á leið.

Natasha er sigurvegari umdeildrar getraunar hjá vefsíðunni BabyNames.net en hún fær fimm þúsund dollara, eða það sem nemur rúmlega 620 þúsund krónum, að taka þátt í verkefninu.

Natasha, sem er augljóslega ekki sjóuð þegar kemur að furðuheimum internetsins, er sannfærð um að almenningur muni velja fallegt nafn á barnið.

Kosningin er hafin og sem stendur eru nöfnin Keturah fyrir stúlku og Winter fyrir pilt efst á lista.

„Ég er sannfærð um að fólk tekur vel í þetta og að nöfnin verði fallegt,“ sagði Natasha.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×