Enginn markmaður ánægður með að fá á sig þrjú mörk Óskar Ófeigur Jónsson í Växjö skrifar 14. júlí 2013 22:06 Guðbjörg í eldlínunni í Växjö í kvöld. Nordicphotos/AFP „
Ég bjóst ekki við því að Þjóðverjar yrðu með svona ótrúlega mikla yfirburði. Ég bjóst að við myndum gefa þeim meiri mótspyrnu en þetta var mjög erfitt. Við ætluðum að reyna að halda núllinu sem lengst en vendipunkturinn var samt annað markið. Á meðan það var 1-0 þá trúir maður alltaf því þá þarf svo lítið til að jafna," sagði Guðbjörg. „Þegar það var komið 0-2 og lítið gekk upp sóknarlega þá misstum við hausinn. Þegar þú missir hausinn þá er þetta búið," sagði Guðbjörg en hún átti stórleik í íslenska markinu og bjargaði því að liðið fékk ekki stóran skell. „Ég þekki ekki neinn markmann sem er ánægður með leik þar sem hann fær á sig þrjú mörk. Það er mjög erfitt að fara kokhraust héðan. Ég verð samt að hugsa jákvætt og að ég hafi gert eitthvað jákvætt í leiknum svona á meðan ég fer yfir öll mörkin sem ég fékk á mig. Ég þarf að horfa á einhverjar markvörslur líka svo að ég haldi nú sjálfstraustinu fyrir næsta leik," sagði Guðbjörg. „Þetta er alls ekki búið. Ég var að heyra það inn í klefa að við þyrftum núna að vinna Holland en þannig er það bara. Við erum upp við vegg og það er pressa á okkur. Við þurfum bara að vinna út úr því eins og atvinnumenn. Við þurfum bara að vinna þær," sagði Guðbjörg. „Við vorum að spila þennan leik og ég þarf að nota kvöldið í það að svekkja sig. Strax og við vöknum í fyrramálið þá förum við að einbeita okkur að Hollandi. Það er mjög jafn leikur því þær eru alls ekki betri en við," sagði Guðbjörg um framhaldið. „Ég held að Ísland og Holland séu mjög svipuð lið. Við spilum svolítið öðruvísi fótbolta en ég held að þetta séu svipuð lið að styrkleika. Við eigum alla möguleika að vinna ef að við náum góðum leik," sagði Guðbjörg.
Tengdar fréttir Margrét Lára: Þær voru bara miklu betri en við Margrét Lára Viðarsdóttir fékk ekki úr miklu að moða í Växjö í kvöld ekki frekar en aðrir sóknarleikmenn íslenska liðsins enda íslenska liðið í varnarhlutverki allan tímann. 14. júlí 2013 21:50 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Ísland - Þýskaland 0-3 | Aldrei möguleiki gegn Þjóðverjum Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0-3 á móti Evrópumeisturum Þýskalands í Vaxjö í kvöld í öðrum leik liðsins á EM í Svíþjóð. Þetta var langt og erfitt kvöld fyrir íslensku stelpurnar en markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir sá til þess að þýsku mörkin urðu aðeins þrjú. 14. júlí 2013 00:01 Mest lesið EM í dag: Fullkominn leikur fyrir Gumma Gumm Handbolti Ótrúleg sigurganga Luke Littler tók loks enda Sport Skýrsla Henrys: Sláturtíð í Kristianstad Handbolti „Ég er bara aumur aðstoðarþjálfari“ Sport Vikor Gísli rændur á tölfræðiblaðinu Handbolti Færeyingar fengu stig með hádramatískum hætti Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Ungverjar ekki í vandræðum með Pólverja Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Handbolti „Höllin var æðisleg“ Handbolti Fleiri fréttir Hákon horfði upp á tap er PSG tók toppsætið Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Gamla Íslendingafélagið gæti breytt aftur um nafn Breytingar hjá Breiðabliki Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Albert fær liðsfélaga frá Leeds Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Kenna Donald Trump og falli Bandaríkjadals um sjö milljarða tap „Á eftir bolta kemur barn“ Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Börsungar sluppu fyrir horn Nökkvi og félagar féllu úr leik í bikarnum Stórleikur hjá Rabiot í mikilvægum sigri AC Milan Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt KR í samstarf við akademíu í Gana Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Samuel Eto'o settur í bann fyrir slæma hegðun en sambandið kvartar Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Sjáðu bæði mörk Viktors í gær Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins Heimamenn Marokkó í úrslitaleikinn eftir vítaspyrnukeppni „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Martraðarbyrjun hjá Arbeloa í Madríd Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Tómas Bent gulltryggði sigurinn Sjá meira
Margrét Lára: Þær voru bara miklu betri en við Margrét Lára Viðarsdóttir fékk ekki úr miklu að moða í Växjö í kvöld ekki frekar en aðrir sóknarleikmenn íslenska liðsins enda íslenska liðið í varnarhlutverki allan tímann. 14. júlí 2013 21:50
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Ísland - Þýskaland 0-3 | Aldrei möguleiki gegn Þjóðverjum Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0-3 á móti Evrópumeisturum Þýskalands í Vaxjö í kvöld í öðrum leik liðsins á EM í Svíþjóð. Þetta var langt og erfitt kvöld fyrir íslensku stelpurnar en markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir sá til þess að þýsku mörkin urðu aðeins þrjú. 14. júlí 2013 00:01