Smíði Helstirnis ekki á döfinni 12. janúar 2013 10:54
Rúmlega 34 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun á vef Hvíta Hússins þess efnis að ríkisstjórn Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, hefji smíði á raunverulegu Helstirni. Röksemdafærslan grundvallast á því að smíðin myndi rétta af fjárlagahalla Bandaríkjanna, skapi milljónir starfa og efli um leið varnir landsins til muna. Aðeins þarf 25 þúsund undirskriftir til að yfirvöld taki áskoranir til greina. Nú hefur Paul Shawcross, vísindaráðgjafi í Hvíta Húsinu, birt opinbert svar Bandaríkjastjórnar. Shawcross bendir á að áætlaður kostnaður við smíði Helstirnisins sé 15 milljónir billjarðar. Verkefnið myndi því seint leiðrétta fjárlagahallann. Þá bendir hann á að það sé ekki stuðningur innan ríkisstjórnarinnar um að sprengja heilu pláneturnar í loft upp. Þar að auki sé lítið vit í því að smíða Helstirni þegar lítil orrustuþota getur grandað geimstöðinni, og það með einu hnitmiðuðu skoti. Þá bendir Shawcross á að alþjóðlega geimstöðin sé nú þegar á sporbraut um jörðu og að það sé afrek í sjálfu sér. „Ef þið ákveðið að afla ykkur menntunar á sviði vísinda, stærðfræði eða verkfræði þá er mátturinn sannarlega með ykkur. Ekki gleyma því að afl Helstirnisins er lítilfjörlegt í samanburði við máttinn." „Við búum í framtíðinni," segir Shawcross að lokum og bætir við: „Njótið þess!"
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira