Læknir sagður hafa rekið „dauðagengi“ Brjánn Jónassson skrifar 3. apríl 2013 12:00 De Souza sat í gæsluvarðhaldi í rúman mánuð en var sleppt 20. mars. Lögregla vill nú fá heimild til að halda henni í gæsluvarðhaldi á ný. Nordicphotos/AFP
Brasilískur læknir er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti 300 sjúklinga. Læknirinn og samstarfsmenn neita sök. Einn stórvirkasti morðingi sögunnar. Brasilískur læknir er grunaður um að hafa valdið dauða að minnsta kosti 300 sjúklinga. Læknirinn er sakaður um að hafa rekið „dauðagengi“ starfsmanna sem hafi myrt sjúklinga sem ekki höfðu keypt sjúkratryggingar til að koma að sjúklingum sem höfðu slíkar tryggingar. Virginia Helena Soares de Souza, 56 ára læknir á gjörgæsludeild spítala í borginni Curitiba, hefur þegar verið ákærð fyrir morð á sjö sjúklingum. Hún og samstarfsmenn hennar hafa frá upphafi haldið fram sakleysi sínu. Lögregluyfirvöld ætla að rannsaka andlát 1.800 sjúklinga á spítalanum til að kanna hvort de Souza hafi átt þar hlut að máli. Komi í ljós að hún hafi átt hlut að máli við andlát 300 sjúklinga sem nú verða rannsökuð yrði hún einn stórvirkasti fjöldamorðingi sögunnar. Breski læknirinn Harold Shipman hefur vermt efsta sætið á þeim lista, en talið er að hann hafi myrt yfir 250 sjúklinga. De Souza og samstarfsmenn hennar eru grunaðir um að hafa gefið sjúklingum vöðvaslakandi lyf sem dró þá til dauða. Í einhverjum tilvikum leikur grunur á að slökkt hafi verið á öndunarvélum sem héldu sjúklingum á lífi. Brasilískir fjölmiðlar hafa spilað símtal de Sousa, sem er meðal annars notað sem sönnunargagn, þar sem hún segir: „Mig klæjar í puttana að rýma gjörgæsluna. Það er því miður þannig að okkar verkefni er að vera milliliðir á stökkbrettinu yfir í næsta líf.“ Rannsókn málsins hefur staðið yfir mánuðum saman en de Souza og sjö samstarfsmenn hennar voru handteknir í febrúar. Þeim var sleppt úr haldi í lok mars en lögreglan hefur nú hug á að fara fram á gæsluvarðhald yfir de Souza að nýju á þeim grundvelli að hún hafi verið forsprakki glæpagengis.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Sjá meira